Innlent

Kryddjurtir og karrý virka vel gegn elliglöpum

Vilhjálmur Ari Arason
Vilhjálmur Ari Arason
Vilhjálmur Ari Arason læknir var gestur í Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í dag. Hann ræddi um óhefðbundnar lækningar og fyrirbyggjandi áhrif kryddjurta og karrýs.

„Það er vitað að minna er um alzheimer í þeim löndum þar sem þessi krydd og jurtir eru mikið notuð," sagði Vilhjálmur.

Vilhjálmur segir að menn séu í auknu mæli að horfa til óhefðbundinni vísinda þegar kemur að því að fyrirbyggja krabbamein og taugahrörnunarsjúkdóma. Vilhjálmur sagði að áherslan á krydd og annað sé nátengt hugmyndum um heilbrigðan lífstíl.

„Á seinni árum hefur verið vaxandi áhersla á ábyrgð á eigin heilsu." sagði Vilhjálmur. „Bæði hvernig maður borðar og hreyfir sig."

Hann sagði að kryddjurtir séu í sífellt meira mæli að sanna sig sem heilsubætandi og fyrirbyggjandi fæði.

Hægt er að hlusta á viðtalið við Vilhjálm hér fyrir ofan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×