Innlent

Fyrst Íslendinga til að ljúka doktorsprófi í músíkþerapíu

JHH skrifar
Valgerður Jónsdóttir músíkþerapisti.
Valgerður Jónsdóttir músíkþerapisti.
Valgerður Jónsdóttir lauk í nóvember síðastliðnum, fyrst Íslendinga, doktorsprófi í músíkþerapíu frá Álaborgarháskóla í Danmörku. Ritgerð hennar nefnist „Music-caring within the framework of early intervention. The lived experience of a group of mothers of young children with special needs, participating in a music therapy group".

Á tuttugu ára starfsferli sínum sem músíkþerapisti hefur Valgerður starfað með einstaklingum á öllum aldri sem glímt hafa við ólíkar fatlanir og sjúkdóma. Þeir hafa átt það sameiginlegt að hafa nýtt sér áhrifamátt tónlistar og þau tengsl sem myndast í tónlistarreynslunni til að efla færni og bæta líðan. Valgerður hefur einnig kynnst forráðamönnum skjólstæðinga sinna og þá einkum mæðrunum og fengið innsýn í líf þeirra. Tilfinningar, líðan og þarfir sem þær tjá fá samhljóm hjá foreldrum sem í ræðu og riti hafa sagt frá þeirri reynslu að eignast og eiga börn með sérþarfir. Hugmyndafræði rannsakanda og kynnin af mæðrunum varð kveikjan að rannsókninni.

Handleiðendur við doktorsritgerð Valgerðar voru prófessorarnir Even Ruud og Gro Trondalen frá Noregi. Andmælendur við vörnina voru prófessor Svend Brinkmann frá Álaborgarháskóla, prófessor Cathy McKinney frá Appalachian State University og prófessor Randi Rolvsjord frá háskólanum í Bergen.

Frekari upplýsingar um doktorsvörn Valgerðar og feril hennar má sjá með því að smella á hlekkinn hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×