Lífið

Tók danska kúrinn á þetta

Söngvarinn Daníel Oliver flutti búferlum til Svíþjóðar árið 2011. Síðan þá hefur hann haft nóg að gera þar í landi en hann hefur meðal annars komið fram á tónlistarhátíðunum Malmö Beach Festival og Stockholm Pride ásamt því að troða upp á tónleikum í London í lok september.

Daníel Oliver hefur líka tekið sig í gegn líkamlega og ætlar sér stóra hluti í þeim efnum í október meistaramánuði eins og svo margir Íslendingar. Í dag skrifar söngvarinn eftirfarandi á Facebooksíðuna sína:

"Árið 2008 gerði ég róttæka breytingu á mataræðinu mínu og fór að mæta reglulega í ræktina. Ég fór úr 83 kílóum niður í 67 sem var heldur lítið reyndar en það gerðist á tiltölulega stuttum tíma....."

Skrollaðu neðar til að lesa meira:

Auglýsingin fyrir tónleika Daníels í Stokkhólmi.MYND/Lalli Sig
Söngvarinn skrifaði eftirfarandi:

Enginn sykur

"Árið 2008 gerði ég róttæka breytingu á mataræðinu mínu og fór að mæta reglulega í ræktina. Ég fór úr 83 kílóum niður í 67 sem var heldur lítið reyndar en það gerðist á tiltölulega stuttum tíma. Ég fór gróflega eftir "Danska kúrs" mataræðinu sem miðast af því að borða eftir næringartöflunni eða mikið af grænmeti, kjöti og fisk, mjólkurvörum og kornmeti en engann sykur!"

MYND/Helgi Ómarsson
Ég er 79 kg núna en ætla mér niður í 72

"Vildi bara deila með ykkur að þetta svínvirkaði og núna þegar meistaramánuðurinn er í fullu gangi þá hef ég tekið þetta mataræði upp aftur og ætla að vera duglegur í ræktinni.. Ég er 79 kg. núna en ég ætla mér niður í 72. Ég geri annan svona status eftir mánuð og vonandi næ ég að sýna það og sanna að hollt mataræði og góð hreyfing er nóg til að fá þrusukropp á stuttum tíma. smile Fæ ég LIKE?"

Heimasíða Daníels Olivers.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.