Lífið

Opinberar sig í nýrri mynd

MYNDIR / COVER MEDIA
Beyoncé Knowles þreytir nú frumraun sína í leikstjórastólnum og leikstýrir heimildarmynd um sjálfa sig. Í myndinni fá aðdáendur stjörnunnar að sjá áður óséð myndbönd af dívunni.

Í einu myndbandinu, sem Beyoncé tók upp á símann sinn, sést ber óléttubumban hennar en myndbandið var tekið upp löngu áður en hún tilkynnti það að hún væri ólétt.

Með Blue Ivy, dóttur sína, í slæðu.
Beyoncé hefur upplifað ýmsar tilfinningar við gerð þessarar einlægu heimildarmyndar.

"Hve mikið á ég að afhjúpa um sjálfa mig? Ef ég er hrædd, leyfi ég mér að vera hrædd," segir stjarnan.

Beyoncé og Jay-Z á körfuboltaleik.
Myndin verður frumsýnd á HBO þann 16. febrúar á næsta ári.

Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.