Lífið

Hættu að gera þér upp fullnægingar



Til að upplifa alveg frábært kynlíf þarftu að geta sagt hvað þú vilt ... eða allavega beint gaurnum í rétta átt. Samskipti eru lykillinn að einstöku kynlífi en vitaskuld er tjáning á innilegustu löngunum ekki alltaf auðveld.

Ekki leika herstjóra

Það eru til góðar leiðir til að komahonum í gírinn (eins og að færa hönd hans varlega á þann stað sem þú vilt láta strjúka eða að biðja hann um að snerta þig þar) og slæmar leiðir (eins og að troða höndinni á staðinn eða öskra skipanir eins og herstjóri).

Mikilvægt að tala saman

Lykillinn að því að tala þannig um kynlíf að afleiðingarnar verði jákvæðar er að biðja um það sem þú vilt án þess að koma með athugasemd umf rammistöðu – einbeittu þér þess vegna að því að tala um ánægju eða það sem er í uppáhaldi í stað þess að gagnrýna.

Náðu nánd og unaði með hreinskilni

Það er mjög mikilvægt að tala saman, kynferðisleg hreinskilni er ómissandi til að ná innilegri nánd og unaði. Ef þú hefur verið að gera þér upp fullnægingar áttu það inni hjá sjálfri þér (og honum) að hætta því.

Ráðið er úr Cosmopolitan bókinni.
Ekki blekkja aftur

Ef þú hefur bara verið með uppgerð nokkrum sinnum þarftu ekki að greina frá blekkingunni en þú verður að sýna honum hvað þér finnst gott. Segðu til dæmis: "Það er svo gott hvernig þú snertir mig. Ef þú gætir fært höndina aðeins ofar og snert mig ... einmitt þarna."

Svalandi stuna virkar


Ef þú ert of feimin til þess að biðja um hlutina beint hefur þú enn nokkra valmöguleika. Gefðu til kynna að hann hafi hitt á rétta staðinn með svalandi stunu þegar hann gerir eitthvað sem þér finnst virkilega gott. Ef þú hefur reynt þetta pena ráð en upplifir ekki enn unað verður þú að hafa þor til að ganga beint til verks og segja honum til. Nokkrar hjálplegar tillögur: Ekki minnast á þetta strax að kynlífi loknu því að þá upplifir hann það sem gagnrýni á tækni sína, eða öllu verra, færnina.

Vertu hreinskilin og stuttorð

Þess í stað skaltu finna rólega stund, eins og uppi í rúmi áður en forleikur hefst eða þegar þið eruð að kúra uppi í sófa, til aðsegja honum að þú viljir að þið stundið enn betra kynlíf og bjóðir upp á nokkrar lausnir. Vertu hreinskilin en stuttorð og leggðu svo til það sem þú telur þig þurfa – til dæmis aðrar kynlífsstellingar eða lengrif orleik – á eins tælandi nótum og þú getur ímyndað þér. Flestir karlmenn eru mjög móttækilegir fyrir slíku.

Facebooksíða bókarinnar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.