Lífið

Rikka velur aðeins þá bestu

MYNDIR / SAGAFILM
Í kvöld hefur raunveruleikaþátturinn MasterChef Ísland göngu sína á Stöð 2. Í þættinum reyna áhugakokkar að heilla dómaratríóið með réttum sínum. Þeim sem tekst það fá MasterChef-svuntu og komast áfram í næstu umferð.

Næsta umferð er svo svokallað "Boot Camp", eða herbúðir, þar sem þeir bestu úr áheyrnarprufunum spreyta sig á ýmsum matreiðsluþrautum. Úr þessum krefjandi búðum komast átta áfram í MasterChef-eldhúsið, stærsta eldhús sem búið hefur verið til í sjónvarpi á Íslandi og útbúið fyrsta flokks tækjum og tólum frá Heimilistækjum.





Dómnefndin í MasterChef er ekki af lakara taginu. Hana skipa Friðrika Hjördís Geirsdóttir, sjónvarpskokkur, Eyþór Rúnarsson, yfirmatreiðslumaður á Nauthól, og Ólafur Örn Ólafsson, yfirþjónn á Hótel Marina.



Lífið kíkti baksviðs við gerð þáttanna eins og sést í meðfylgjandi myndasafni en gríðarlega spennandi verður að sjá hver verður krýndur fyrsti meistarakokkur Íslands.

Facebook-síða MasterChef Ísland

Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.



Svunturnar eftirsóttu.
Leikstjórinn Ragnar Agnarsson og dómnefndin í djúpum samræðum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.