Lokabardaginn háður 15. nóvember 2012 11:27
Twilight-myndaflokkunum lýkur með frumsýningu Breaking Dawn Part 2 annað kvöld. Myndin skartar Kristen Stewart og Robert Pattinson í aðalhlutverkum. Fimmta og síðasta kvikmyndin í Twilight-kvikmyndaröðinni verður heimsfrumsýnd hér á landi annað kvöld. Líkt og fyrri kvikmyndirnar í Twilight-röðinni fjallar Breaking Dawn Part 2 um líf og ástir stúlkunnar Bellu Swan og vampírunnar Edward Cullen. Parið er nú gift og á saman barn, dótturina Renesmee, auk þess sem Bella er orðin að vampíru. Þegar Irina, sem er meðlimur Denali-fjölskyldunnar, segir Renesmee vera dauðlegt barn sem breytt hafi verið í vampíru verður uppi fótur og fit innan vampírusamfélagsins. Í kjölfarið neyðast Bella og Edward til að verja líf sitt og Renesmee og fá vini sína til að berjast sér við hlið. Með hlutverk Bellu og Edwards fara Kristen Stewart og Robert Pattinson og með hlutverk Renesmee fer hin unga Mackenzie Foy. Leikararnir Kellan Lutz, Ashley Greene, Peter Facinelli og Elizabeth Reaser bregða sér aftur í hlutverk Cullen-fjölskyldumeðlima og Taylor Lautner fer enn á ný með hlutverk varúlfsins Jacobs Black. Leikstjóri myndarinnar er Bill Condon en sá hefur einnig leikstýrt kvikmyndunum Chicago, Kinsey og Dreamgirls sem skartaði söngkonunum Beyoncé Knowles og Jennifer Hudson í aðalhlutverkum. Myndin verður frumsýnd sama dag á Íslandi og Bandaríkjunum og því liggja ekki fyrir dómar um myndina. Næsta víst er að aðdáendur Twilight-kvikmyndanna munu flykkjast á Breaking Dawn Part 2 óháð gagnrýnisröddum enda hefur myndarinnar verið beðið með mikilli eftirvæntingu. Fyrri hluti Breaking Dawn fékk heldur slaka dóma og hlaut aðeins 25 prósent í einkunn á vefsíðunni Rottentomatoes.com. 12 ára gamla Mackenzie Foy setti blót-bann á meðleikara sína á meðan á tökum stóð. Hver sá sem blótaði fyrir framan stúlkuna þurfti að setja pening í krukku sem hún nefndi „blótsyrðakrukkuna". Upphæðin sem safnaðist var afhent St. Jude's barnaspítalanum. Þriggja vikna gamalt kornabarn sést í kvikmyndinni. Kristen Stewart þótti betra að halda á raunverulegum kornabarni en brúðu við tökur. Henni þótti leikur sinn meira sannfærandi þegar hún hélt á lifandi barni. Fimm mánuðir fóru í tökur á báðum hlutum Breaking Dawn. Tökur stóðu frá nóvember 2010 og lauk að mestu þann 15. apríl 2011.
Mest lesið Einar á Söndru Bullock mikið að þakka Lífið Valerie Mahaffey er látin Lífið Race Across the World-keppandi látinn eftir bílveltu Lífið Jóhanna Guðrún gæsuð Lífið Á loks réttinn að öllum plötunum sínum Lífið Krakkatían: Lilo & Stitch, Skólahreysti og útskriftir Lífið „Ég fæ ekki á broddinn nema Knicks vinni“ Lífið Matti Matt nú meistari Lífið Yfir tvö hundruð tryllitæki sýnd um helgina Lífið samstarf Fréttatía vikunnar: Clint Eastwood, útivistarsvæði og óvenjuleg lending Lífið Fleiri fréttir Race Across the World-keppandi látinn eftir bílveltu Valerie Mahaffey er látin Krakkatían: Lilo & Stitch, Skólahreysti og útskriftir Einar á Söndru Bullock mikið að þakka Á loks réttinn að öllum plötunum sínum „Ég fæ ekki á broddinn nema Knicks vinni“ Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn Fréttatía vikunnar: Clint Eastwood, útivistarsvæði og óvenjuleg lending Matti Matt nú meistari Mikið um dýrðir á þjóðardegi Íslands í Japan Sætustu systur landsins skáluðu fyrir Birni Hamingjusöm pör noti mikið samanburð við aðra Í Love Island eftir lífshættulegt slys Sydney Sweeney selur sápu úr skítugu baðvatni sínu Jóhanna Guðrún gæsuð Brad Pitt tjáir sig í fyrsta skipti um skilnaðinn „Þetta tekur svo svakalega á sálartetrið“ Sjarmerandi miðbæjaríbúð listapars Heillaði að læra hefðirnar í Húsó Steldu senunni í veislu sumarsins Hefur lést um níu kíló eftir hjartaáfallið: „Maður vaknar svolítið við þetta“ Dreymir stanslaust kynlíf með öðru fólki en makanum Skvísurnar tóku yfir klúbbinn Tónlistarbransadrottning selur miðbæjarslotið Handlagin hjón selja tvær eignir í sögulegu farandshúsi Kjalar ástfanginn í tvö ár Diddú tíu þúsundasti gestur fótboltabullnanna Sú elsta í sögu Ungfrú Ísland glímdi við átröskun og varð minnst 39 kíló Alda Karen keppir í hermiakstri Var ekki að lifa lífinu heldur að þrauka það Sjá meira