Lífið

Þorir að vera öðruvísi

Flott týpa hún Anne Hathaway.
Flott týpa hún Anne Hathaway.
Stórleikkonan Anne Hathaway hefur veirð mikið í umræðunni undanfarið eftir að hún missti mörg kíló fyrir nýjasta hlutverk sitt. Hathaway mætti á Women's Media verðlaunin í vikunni og leit vel út.

Leikkonan var í nýþröngum kjól eftir sjálfa Victoriu Beckham.

Til að brjóta upp klassískt og fágað útlit sitt var Hathaway með rauðlakkaðar neglur fyrir utan eina sem var hvít. Blandan kom skemmtilega á óvart.

Það er óhætt að segja að hún þori að prófa nýjungar en ekki er langt síðan lokkarnir fengur að fjúka fyrir drengjakoll.



Glæsileg með stutta hárið.
Skemmtileg útkoma að lakka eina nögl í öðrum lit.
Kjóllinn sem leikkonan klæddist er eftir Victoriu Beckham.
Anne talaði frá hjartanu.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.