Ofurfyrirsætan Miranda Kerr sýndi sína heimsfrægu leggi í djörfum kjól í partíi á vegum tímaritsins W í New York.
Miranda klæddist gráum kjól og var með bláa Bvlgari-eyrnalokka við. Módelið vílaði ekki fyrir sér að pósa hér og þar í partíinu svo allir gætu fest fótleggina á filmu.
Miranda prýddi tískupalla Victoria's Secret í síðustu viku og vakti ómælda lukku á tískusýningu englanna. Enda er hún víst ein kynþokkafyllsta kona í heimi að mati margra.
