Innlent

Íslenska ríkið sýknað

Hæstiréttur staðfesti sýknudóm yfir íslenska ríkinu í dag. Foreldrar, ósjálfráða drengs, fóru í mál við ríkið vegna líkamstjóns sem þau töldu að sonur þeirra hefði orðið fyrir við fæðingu sína í mars árið 1999.

Móðirin hafði fengið meðgöngueitrun er hún gekk með piltinn og reisti hún kröfur sínar á því að starfsmenn Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri bæru ábyrgð á því að hafa vanrækt að leggja móður hans inn á sjúkrahúsið til eftirlits og meðferðar vegna fyrrgreindra veikinda, er hún fékk þar læknisskoðun.

Með dómi héraðsdóms, sem var staðfestur í Hæstarétti í dag, var því slegið föstu að læknisskoðunin hefði verið ófullnægjandi, en á hinn bóginn yrðu orsakir veikinda piltsins ekki raktar til þeirrar læknisskoðunar.

Ekki voru talin vera orsakatengsl fyrir hendi og því var íslenska ríkið því sýknað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×