Útskýra jólaorðin í dagatalinu 6. nóvember 2012 10:46 Skoppa og skrítla opna glænýtt dagatal með börnunum á stöð 2 í desember. fréttablað/vilhelm "
Við erum komnar í mikið jólaskap," segir Hrefna Hallgrímsdóttir, sem íslensk börn þekkja flest undir nafninu Skrítla. Þær vinkonur Skoppa og Skrítla eru nú í óðaönn að undirbúa glænýtt jóladagatal sem frumsýnt verður í desember á Stöð 2. Þáttunum fylgir jóladagatal sem börnin geta eignast og hengt upp heima. "Í upphafi hvers þáttar opnum við glugga á dagatalinu okkar en þar leynist orð og lítil mynd. Orðin tengjast aðdraganda jólanna sem börnin heyra okkur fullorðna fólkið nota en þau skilja ekki endilega sjálf," útskýrir Hrefna. "Sem dæmi má nefna orð eins og kátína, eftirvænting, annríki og frímerki." Stöllurnar munu fá hjálp frá ýmsum vinum til að átta sig á merkingu orðanna og sumir eru ekki betur að sér en svo að þeir telja hirðingja einfaldlega vera einhvern sem fer reglulega í Sorpu til þess að hirða þar eitthvert drasl. Þannig telja Skoppa og Skrítla niður dagana með börnunum en líkt og þau eru þær báðar mjög spenntar fyrir jólunum. "Við þurfum sífellt að minna hvor aðra á að vera þolinmóðar," segir Hrefna og bætir við: "Í lok hvers þáttar drögum við eitthvað upp úr jólapokanum okkar og smám saman verður jólalegra hjá okkur." Skoppa og Skrítla eiga heima baksviðs í leikhúsinu, eins og íslensk börn vita. Þættirnir verða þrjár til fjórar mínútur að lengd og stöllurnar leitast við að höfða til jólabarna á öllum aldri. "Við reynum að hafa þættina þannig að yngstu börnin njóti þeirra, jafnvel þótt þau skilji ekki endilega það sem fram fer," segir Hrefna og bætir við að það sé líka mikilvægt að fullorðna fólkið geti haft gaman af þeim. Líkt og áður skipar tónlist og dans stóran þátt hjá Skoppu og Skrítlu og enginn ætti að fara í jólaköttinn við að aðstoða þær í leitinni að sönnum kærleiksanda jólanna. -hþó
Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Fleiri fréttir Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Sjá meira