Innlent

Réðist að foreldum sínum og lögreglu

Hlíðarnar. Athugið að myndin tengist ekki fréttinni beint.
Hlíðarnar. Athugið að myndin tengist ekki fréttinni beint.
Það var um þrjúleitið í nótt þegar lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var send að heimili í Hlíðunum. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglu hafði rúmlega tvítugur maður veist að foreldrum sínum. Þegar lögregla kom á vettvang reyndi hann að berja lögreglumenn með húsmunum.

Við handtöku náði maðurinn að koma höggi í andlit lögreglumanns sem þurfti að leita sér aðstoðar á slysadeild.

Lögreglumaðurinn var blóðugur og bólginn eftir. Maðurinn sem gistir nú fangageymslu verður yfirheyrður þegar hann verður í ástandi til þess.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×