Innlent

Vopn Asera gegn Íran: J-Lo

Jennifer Lopez á tónleikum.
Jennifer Lopez á tónleikum. mynd/AFP
Hugmyndafræðilegt stríð Asera og Írana náði nýjum hæðum á dögunum þegar bandaríska dívan Jennifer Lopez steig svið í Aserbaídsjan.

Hátt í þrjátíu þúsund Aserar sóttu tónleika söngkonunnar. Engu var til sparað. Tónleikahaldarar reistu sérútbúið svið rétt við Kaspíahaf, steinsnar frá landamærum Írans.

„Gremja Írana lá í loftinu," sagði embættismaður í Aserbaídsjan í samtali við fréttaritara AP. „Þeir þola ekki svona hluti."

Löngum hefur reynt á milliríkjasamband Írana og Asera. Þjóðirnar eru að mörgu leyti líkar. Saga þeirra, trúarbrögð og menning, eru nátengd. En hugmyndafræðilegur ágreiningur hefur engu að síður einkennt samskipti þeirra. Nú vilja Aserar sýna Írönum hvað í þeim býr.

„Þetta er sannarlega ein helsta ógnin við stöðuleika í Íran," sagði Matthew Bryza, fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna í Aserbaídsjan. „Þegar efnahagur Aserbaídsjan eflist og landið eflir tengsl sín við Evrópu þá þýðir það í raun að valdhöfum í Íran er ógnað."

Nú þegar Íran tekst á við afleiðingar viðskiptaþvingana Vesturlanda hafa Aserar lagt allt í sölurnar til að efla pólitísk tengsl sín við vestrænar þjóðir.

„Það er auðvelt að gera grín að Aserum, en þetta er beinlínis hluti af utanríkisstefnu þeirra," sagði diplómati í Baku, höfuðborg Aserbaídsjan. „Þetta eru skilaboð til heimsins: Við erum okkar eigið land og við getum fengið heimsklassa skemmtikrafta. Á öðru sviði eru þetta skilaboð til Írana."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×