Innlent

Falskt brunaútkall í Kópavogi í nótt

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu fékk falskt brunaútkall að íbúð í fjölbýlishúsi í Hamraborg í Kópavogi í nótt.

Þegar slökkvilið og lögregla komu á vettvang var engin heima og allt með felldu, en vitað er úr hvaða farsíma var hringt í Neyðarlínuna.

Það virðist vera sími húsráðanda í umræddri íbúð og verður málið væntanlega kannað nánar í dag, en þunga sektir liggja við svona athæfi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×