Innlent

Erfðabreytt matvæli geta verið heilsuspillandi

Ný frönsk vísindarannsókn bendir til þess að langtíma neysla erfðabreyttra afurða kunni að hafa neikvæð áhrif á heilsufar.

Rannsóknin sýnir skaðleg heilsufarsáhrif erfðabreytts maísyrkis sem víða er notað í dýrafóður og matvæli og varpar hún þar með ljósi á alvarlegar brotalamir í leyfisveitingakerfi sem notast er við í Evrópu og hér á landi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Neytendasamtökunum. Þar segir einnig að af þessu tilefni hafa fimm landssamtök og þjónustuaðilar skorað á stjórnvöld að stöðva leyfisveitingar til útiræktunar á erfðabreyttum plöntum hér á landi, þar til fram hefur farið gagnger endurskoðun á regluverki slíkra leyfisveitinga.

Í opnu bréfi sem þessir aðilar hafa sent stjórnvöldum er þess einnig krafist að vísindarannsóknir sem lagðar eru til grundvallar leyfisveitingum verði gerðar gegnsærri og óháðari hagsmunum líftæknifyrirtækja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×