Lífið

Leyfi mér að djóka aðeins með hommaskap

"...það er greinilegt að skammdegið er strax farið að fara illa í mannskapinn. Þurfum við ekki að létta aðeins stemmninguna á þessum klaka?" skrifar Sölvi á Facebooksíðuna sína í dag.
"...það er greinilegt að skammdegið er strax farið að fara illa í mannskapinn. Þurfum við ekki að létta aðeins stemmninguna á þessum klaka?" skrifar Sölvi á Facebooksíðuna sína í dag. mynd/sölvi einkasafn
„Ég lít ekki á samkynhneigða sem hóp sem þarf að vorkenna og þess vegna leyfi ég mér að djóka aðeins með hommaskap...það er greinilegt að skammdegið er strax farið að fara illa í mannskapinn. Þurfum við ekki að létta aðeins stemmninguna á þessum klaka?" skrifar Sölvi Tryggvason fjölmiðlamaður og rithöfundur á Facebooksíðuna sína í dag en hann viðurkenndi í Fréttablaðinu í byrjun vikunnar að hann er haldinn skófíkn.

„Karlarnir fatta bara ekki hversu miklu máli þetta skiptir. Ég var reyndar í bænum um helgina og þá var ég þrisvar sinnum spurður hvort ég væri hommi en ég tek því sem miklu hrósi fyrir minn fatastíl," sagði Sölvi meðal annars í Fréttablaðinu og að honum finnst íslenskir karlmenn hugsa of lítið um klæðaburð og þá staðreynd að hann hefur fundið fyrir auknum áhuga hins kynsins eftir að hann fór að spá í tísku og safna skóm.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.