Reykjanesbrautin einn öruggasti vegur landsins - samt flest slys á ári 7. febrúar 2012 12:45 Reykjanesbraut. Mynd / Vilhelm Gunnarsson
Hættulegasti vegur landsins er leiðin á milli Neskaupsstaðar og Stöðvarfjarðar sem meðal annars liggur í gegnum Oddsskarð. Þetta kemur fram í rannsókn sem birtist í Læknablaðinu nýverið. Það voru þeir Þóroddur Bjarnason og Sveinn Arnarson sem framkvæmdu rannsóknina. Niðurstöðurnar eru athyglisverðar, ekki síst vegna þess að Reykjanesbrautin á milli Hafnarfjarðar og Reykjanesbæjar er ein öruggasta leiðin á Íslandi. Þannig reiknuðu fræðimennirnir út að miðað við milljón ekna kílómetra væru fæst slys á Reykjanesbrautinni. Aftur á móti kemur fram að flest slys verða sannarlega á Reykjanesbrautinni. Munurinn er hinsvegar sá að miðað við umferðina þá er vegurinn nokkuð öruggur. Tímabilið sem var skoðað var frá 2007 til 2010. Í grein fræðimannanna segir til útskýringar: „Fjöldi slysa var reiknaður annars vegar á hvern km en hins vegar á hverja milljón ekna km. Við mat á hættulegustu vegarköflunum var litið á báðar þessar stærðir og þær látnar hafa jafnt vægi". Flest slys verða á Reykjanesbraut, milli Hafnarfjarðar og Keflavíkur, á hverjum eknum kílómetra (10,3 slys/km). Í öðru sæti er síðan Suðurlandsvegur milli Reykjavíkur og Selfoss (10 slys/km). Í þriðja sæti er svo Vesturlandsvegur frá Þingvallaafleggjara að Borgarnesi (6,2 slys/km). Niðurstöðurnar líta öðruvísi út þegar hættulegustu vegarkaflarnir, utan þéttbýlis þegar miðað var við meðaltöl raðtalna fyrir bæði fjölda og tíðni slysa, eru skoðaðir. Vegurinn milli Neskaupsstaðar og Stöðvarfjarðar um Oddsskarð og Fáskrúðsfjarðargöng reyndist samkvæmt þessu líkani hættulegasti vegur landsins, en hann var í 10. sæti yfir þá vegi þar sem flest slys verða á hvern km vegar og 8. sæti yfir þá kafla þar sem flest slys verða á milljón ekna km. Í öðru sæti var vegurinn frá Hellissandi að Stykkishólmi á Vesturlandi en vegurinn frá Þingeyri til Súðavíkur á Vestfjörðum um Gemlufallsheiði og Vestfjarðagöng í þriðja sæti. Í fjórða sæti var kaflinn frá Seyðisfirði til Reyðarfjarðar um Fjarðarheiði og Fagradal. Samkvæmt þessu líkani er vegurinn á milli Jökulárlóns og Skaftafells sá öruggasti á landinu. Greinarhöfundar fjalla svo nokkuð um svokallaða „núllsýn". Þannig segir í greininni: „Á síðustu misserum hefur verið lögð áhersla á svonefnda „núllsýn" umferðaröryggis þar sem stefnt er að engum umferðarslysum. Sé litið á umferðaröryggi út frá forsendum lýðheilsu er brýnast að draga úr fjölda slysa á Reykjanesbraut, Suðurlandsvegi allt að Hvolsvelli og Vesturlandsvegi norður yfir heiðar til Akureyrar, og helstu vegum á Mið-Austurlandi. Út frá öryggi einstaklinga er hins vegar nauðsynlegt að huga sérstaklega að fáfarnari vegum á norðausturhorni landsins, frá Kópaskeri og austur á Hérað, norðanverðu Snæfellsnesi og öllum helstu vegum á sunnanverðum og norðanverðum Vestfjörðum, frá Brjánslæk að Súðavík." Hægt er að nálgast greinina í heild sinni hér.
Mest lesið Þetta er fólkið á bak við Skjöld Íslands Innlent Móðir og níu mánaða barn hætt komnar í Þrengslunum Innlent Hótað og ógnað eftir að hafa aðstoðað lögreglu Innlent Ozzy Osbourne allur Erlent Alvarlega slösuð bankakona lagði VÍS eftir langa og stranga baráttu Innlent Hitinn víða yfir 50 stig og vatnsforðinn að þorna upp Erlent Hefði sagt nei: Sumarfrí bæjarfulltrúa opnaði fyrir endurskipulag á Nónhæð Innlent Brú skóf þakið af tveggja hæða rútu Erlent Reyndu að koma í veg fyrir að hún settist upp í hjá afrískum bílstjóra Innlent Lögreglan hugsi yfir Skildi Íslands: Eitt lögbrot verði ekki réttlætt með öðru Innlent Fleiri fréttir Skildirnir hafi hótað konum sem setji út á þá Fyrsti konsertflygilinn í Skálholtskirkju vígður „Hvetjum fólk til þess að treysta okkur bara fyrir því“ Sækja mann sem datt af hestbaki Lögregla afþakkar þjónustu Skjaldar Íslands og Guðni boðar brennu Félagið Ísland-Palestína harmar skvettuna Rán og frelsissvipting í Árbæ Mótmælandi skvetti málningu á ljósmyndara Morgunblaðsins Brottfararstöð dómsmálaráðherra komin í samráðsgátt Móðir og níu mánaða barn hætt komnar í Þrengslunum Þetta er fólkið á bak við Skjöld Íslands Reyndu að koma í veg fyrir að hún settist upp í hjá afrískum bílstjóra Tveir af þremur ánægðir með beitingu „kjarnorkuákvæðisins“ Alvarlega slösuð bankakona lagði VÍS eftir langa og stranga baráttu Lærði skriðsund á YouTube og syndir Ermarsund á morgun Sjálfsagt að taka málið fyrir: „Leysist ekkert sjálfkrafa við að ganga inn í Evrópusambandið“ Lögreglan hugsi yfir Skildi Íslands: Eitt lögbrot verði ekki réttlætt með öðru Eldur í verslunarhúsnæði á Laugavegi Play tekur dýfu í skugga afkomuviðvörunar og Njáll Trausti vill funda Hótað og ógnað eftir að hafa aðstoðað lögreglu Laugavegurinn að „deyja úr velgengni“ Loftgæði mun betri á höfuðborgarsvæðinu Njáll Trausti vill fund hið fyrsta í atvinnuveganefnd Hefði sagt nei: Sumarfrí bæjarfulltrúa opnaði fyrir endurskipulag á Nónhæð Með vesen í miðborginni og á bráðamóttöku og síðar handtekinn vegna þjófnaðar Virknin bundin við einn gíg: Gasmengunar gæti orðið vart á Suðurlandi Ekki hægt að draga ályktanir um hver varð manninum „líklegast“ að bana Hvalreki í Vogum Gosmóðan gæti setið sem fastast fram á fimmtudag: „Menn verða að taka þetta alvarlega“ Hefur áhyggjur af málflutningi „taugaveiklaðrar“ stjórnarandstöðu Sjá meira