Upplýsingafulltrúi Marel mun vinna fyrir Hollywoodstjörnur 7. febrúar 2012 16:06
Jón Ingi Herbertsson er að láta af störfum í markaðsdeildinni hjá Marel til þess að fara að vinna í upplýsingadeild Sameinuðu þjóðanna. Hann mun vinna að samskiptum SÞ við kvikmynda- og sjónvarpsiðnaðinn og hluti af vinnunni snýst um að vinna með velgjörðarsendiherrum SÞ. Á meðal þekktustu velgjörðarsendiherranna eru Angelina Jolie, George Clooney, Michael Douglas og Charlize Theron svo dæmi séu nefnd. Aðspurður segist Jón Ingi þó varla hægt að stilla málum þannig upp að hann hafi yfirgefið Marel fyrir Angelinu Jolie. „Þetta er á upplýsingadeild Sameinuðu þjóðanna sem vinnur allt sem kemur að upplýsingagjöf Sameinuðu þjóðanna," segir Jón Ingi. Einn angi af starfinu mun snúast um vinnu með velgjörðarsendiherrunum. Jón Ingi segir að starfið sé tiltölulega nýtt þannig að lítið sé hægt að segja til um það fyrr en hann komi til New York og byrji í starfinu. „En bæði er þetta til að aðstoða þá sem vilja fjalla um málefni tengd Sameinuðu þjóðunum, vilja fá aðgang og þess háttar. Svo fjallar þetta líka um það að vera með fundi og námskeið fyrir kvikmyndagerðamenn í hinum ýmsum löndum um tiltekin málefni Sameinuðu þjóðanna til að koma þeim á framfæri," segir Jón Ingi. Jón Ingi segir að velgjörðarsendiherrar séu virkir í því að taka þátt í uppákomum til að kynna málaflokka sem Sameinuðu þjóðirnar eru viðriðnar hann sjálfur muni koma að því starfi að einhverju leyti. „Þetta er svona í stórum dráttum það sem ég get sagt," segir Jón Ingi. Þótt viðfangsefni Marel og Sameinuðu þjóðanna virðist eiga fátt sameiginlegt segir Jón Ingi að starfið hjá Sameinuðu þjóðunum sé í grunninn kannski ekki svo ólíkt því starfi sem hann lætur nú af. „Þetta snýst náttúrlega allt um samskipti og að koma málefnum á framfæri," segir hann. Jón Ingi er ekki ókunnugur Sameinuðu þjóðunum því hann hefur unnið þar um árabil. Á vef Viðskiptablaðsins kemur fram að hann vann á upplýsingadeild Sameinuðu þjóðanna í New York á árabilinu 1992 til 2004 en flutti eftir það til Genf í Sviss þar sem hann vann sömuleiðis hjá sömu stofnun.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira