Ólýsanlega gott að geta hlaupið Hólmfríður Helga Sigurðardótir skrifar 26. ágúst 2012 15:23
Í dag leggur Helgi Sveinsson af stað til London, þar sem hann keppir í þremur greinum á Ólympíumóti fatlaðra og stefnir á gullið í tveimur þeirra. Helgi hefur náð undraverðum árangri á stuttum tíma, en hann byrjaði aftur að hlaupa fyrir einu og hálfu ári, eftir að hafa misst annan fótinn í kjölfar krabbameins þegar hann var 19 ára. Það er ólýsanlega gott að geta hlaupið aftur. Þetta smáatriði, að finna vindinn í eyrunum, fékk mig næstum því til að tárast þegar ég fann fyrst fyrir því aftur," segir íþróttamaðurinn Helgi Sveinsson. Saga hans er einstök fyrir margar sakir, ekki síst þær að það eru ekki nema tæp tvö ár frá því að hann freistaði þess að hlaupa í fyrsta sinn eftir að hann missti fótinn í kjölfar krabbameins fyrir þrettán árum. Eldsnemma í morgun lagði hann svo af stað á sitt fyrsta Ólympíumót. Hann er einn af fjórum Íslendingum sem taka þátt í Ólympíuleikum fatlaðra, sem hefjast í London 29. ágúst og standa til 9. september.Ánetjaðist hlaupunum Helgi er að eigin sögn íþróttasuga. Hann æfði handbolta af kappi sem barn og unglingur og lét sig dreyma um að verða atvinnumaður í greininni, auk þess að hafa áhuga á velflestum öðrum íþróttum. Eftir að hann missti fótinn lagði hann alla slíka drauma á hilluna og hélt það yrði einungis fjarlæg minning að geta svitnað og tekið á því á hlaupum. "Það er svo ótrúlega þægileg tilfinning að taka á því. Þeir sem eru með tvo heilbrigða fætur, en nota þá ekki, þurfa að fara að gera eitthvað í sínum málum! Þeir eru að sóa alltof miklu," segir Helgi, áður en hann hefur söguna af því hvernig hann varð Ólympíuíþróttamaður, eftir þrettán ára "hvíld" eins og hann orðar það sjálfur: "Það var fyrir um það bil einu og hálfu ári að það var haldinn sérstakur dagur í Laugardalshöll fyrir krakka sem nota gervilimi eða spelkur. Þar kynntist ég þjálfaranum mínum, Kára Jónssyni. Hann er íþróttakennari og hefur bæði þjálfað heilbrigða og fatlaða einstaklinga. Hann var búinn að vera að leita að manni sem gæti hlaupið á fjöður og sá þarna eitthvað tækifæri í mér." Skemmst er frá því að segja að Helgi hefur verið á hlaupum síðan.Stefnir á gullið Á Ólympíuleikunum í London keppir Helgi í þremur greinum. Fyrst keppir hann í langstökki þann 29. ágúst klukkan 19.30. Næsta keppni er svo 7. september, en þá keppir hann bæði í 100 metra hlaupi og spjótkasti. Hann hefur raunhæfa möguleika á að komast á pall, bæði í langstökkinu og spjótkastinu, og setur markið jafnvel enn hærra. "Ég hef mjög skýr markmið og set mikla pressu á sjálfan mig. Á góðum degi gæti ég fengið gullið í þessum tveimur greinum. Eins og staðan er í dag er ég ekki alveg nógu góður í spretti til að geta skákað þeim bestu þar," segir hann og bætir við sposkur á svip: "Enn þá!" Helgi var mjög efnilegur handboltamaður áður en hann veiktist og þaðan hefur hann líkast til kastkraftinn. Það var í upphitun fyrir hlaupaæfingu fyrir nokkrum mánuðum að hann ákvað að prófa að kasta spjótinu að gamni sínu. Á sömu æfingu náði hann ólympíulágmarkinu og keppti nokkrum vikum síðar á næsta Evrópumeistaramótinu í frjálsum íþróttum, þar sem hann kastaði spjótinu 46,52 metra og lenti í öðru sæti. Þar bætti hann sitt eigið met um heila ellefu metra.Ljós í myrkrinu Helgi var átján ára þegar hann greindist með beinkrabbamein. Við tók háskammtalyfjameðferð sem gekk ekki betur en svo að nauðsynlegt var að taka af honum fótinn, nokkrum sentimetrum fyrir ofan hné, í mars árið 1999. Hann eyddi næstu átta til níu mánuðum eftir það að mestu inni á spítala. Svona hafði Helgi, sem var lífsglaður ungur maður með háleita drauma um framtíðina, ekki séð fyrir sér 20. aldursárið. Það var hins vegar ljós í myrkrinu. "Um leið og ég kláraði lyfjameðferð á 11-E var ég keyrður í gegnum ganginn undir spítalanum og upp á fæðingardeild. Þar var dóttir mín að koma í heiminn. Konan sem tók á móti henni hafði eiginlega meiri áhyggjur af mér heldur en móður og barni, enda var ég hundveikur. Þetta voru mjög sérstakar aðstæður, en það hjálpaði mér að komast í gegnum þetta að eignast dóttur í miðju ferlinu. Þá hafði ég allan tímann öðru mikilvægu verkefni að sinna."Andlegt flugslys Helgi setti því undir sig hausinn og tók áfallinu með kreppta hnefana. Oft var honum boðin aðstoð til að takast á við áfallið, en hana þáði hann aldrei. "Ég sá það ekki fyrr en löngu seinna að ég hefði betur þegið aðstoð. Ég mæli ekki með því að takast á við áföll á þennan hátt, þó það hafi styrkt mig og brynjað mig upp." Tilfinningunni sem síðar helltist yfir hann, þegar áfallið loks náði í skottið á honum, líkir Helgi við andlegt flugslys. "Hausinn á mér fór algjörlega á hvolf. Í kjölfarið lenti ég í slæmum félagsskap og fór út á röngu brautina, þar sem ég var í góðan tíma. En svo fékk ég sem betur fer nóg af því og fór í meðferð. Ég er búinn að vera edrú í sex ár í dag." Og hann er líka búinn að læra að þiggja aðstoð þegar hann þarf á henni að halda. "Ég hef alltaf farið þá leið að gera allt sjálfur og hef aldrei þegið neina aðstoð frá öðrum. Ég er hins vegar nýbúinn að uppgötva að það er allt í lagi að þiggja smá aðstoð. Það gerir alla hluti miklu auðveldari."Gæfuhjólin snúast á ný Það var fyrir þremur árum sem hjól gæfunnar fóru aftur að snúast fyrir Helga. Þá fékk hann vinnu hjá Össuri, þar sem hann vinnur í þróunardeild við að prófa gervifætur og aðrar vörur sem þar eru búnar til og gefa ábendingar um hvað er gott og hvað mætti betur fara í vöruþróuninni. Þá fer hann um heiminn og sýnir vöruna, en hann hefur ferðast mjög víða um Evrópu og Bandaríkin, auk Japans, Suður-Afríku og fleiri framandi landa, á vegum vinnunnar. "Eftir að ég fékk vinnu hér hefur leiðin legið upp á við. Hér fæ ég allt sem ég þarf og mér er sinnt ótrúlega vel. Hér er góður andi og hér hef ég eignast góða vini. Þetta er algjör draumur í dós." Helgi reynir að hitta alla þá sem koma í heimsókn til Össurar, sem eru nýbúnir að missa eða við það að missa útlim. "Mér finnst mikilvægt að geta sýnt fólki hvernig það mun á endanum geta gengið," segir hann og hér verður að skjóta því inn að það þarf að rýna vel í göngulag Helga til að átta sig að því að hann hefur ekki tvo fætur undir sér af hefðbundnu tegundinni. "Það gefur mér mikið að geta hjálpað öðrum í þessum málum. Mig langar líka að kenna fólki að fara öðruvísi að en ég gerði. Mín leið var allt of erfið."Þegar margar dyr opnast "Ég er bara rétt að byrja. Ég ætla mér að halda áfram að hlaupa alveg þangað til ég get það ekki lengur og stefni á að gera almennilega hluti á Ólympíuleikunum í Brasilíu," segir Helgi, spurður út í hvar hann sjái sig í framtíðinni. Þótt hann óski engum að lenda í sömu hremmingum og hann, vonast hann til þess að aðrir læri af hans dæmi hvernig ógæfan getur snúist manni í hag. "Ég átti aldrei von á að þessi reynsla ætti eftir að gefa mér svona mikið. En þegar einar dyr lokast opnast aðrar, það er bara þannig. Í mínu tilviki opnuðust margar, þannig að ég get ekki annað en verið sáttur við mitt hlutskipti í dag."
Mest lesið Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Innlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Þúsundir syrgja í Tehran og Trump segir æðstaklerkinn ljúga Erlent Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Innlent Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Innlent Allt að sautján stiga hiti í dag Veður Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Innlent Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Innlent Steini frá Straumnesi látinn Innlent Fleiri fréttir Átök í Sósíalistaflokknum, þinglokaviðræður og síðasti dagur Litlu kaffistofunnar Veiðigjöld ekki á dagskrá þingfundar í dag Gripinn við innbrot og bíl ekið inn í búð Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Sjá meira