Sport

Jamaíka náði ekki að ljúka keppni | Bolt á ekki möguleika á fjórða gullinu

Jermaine Gonzales, sem hljóp þriðja sprettinn fyrir Jamaíku, meiddist og varð að hætta keppni.
Jermaine Gonzales, sem hljóp þriðja sprettinn fyrir Jamaíku, meiddist og varð að hætta keppni. Nordic Photos / Getty Images
Karlasveit Jamaíku náði ekki að ljúka keppni í undanrásum í 4x400 metra boðhlaupinu á Ólympíuleikunum í London í morgun. Jermaine Gonzales, sem hljóp þriðja sprettinn fyrir Jamaíku, meiddist og varð að hætta keppni. Þar með er ljóst að Usain Bolt mun ekki hafa möguleika á að landa fjórum gullverðlaunum á ÓL, en hann hafði gefið það í skyn að hann gæti tekið einn sprett fyrir Jamaíku í úrslitahlaupinu.

Sveit Bahama sigraði í þessum riðli en Ólympíumeistarasveitin frá Bandaríkjunum varð í öðru sæti. Bandaríkin hafa haft mikla yfirburði í þessari grein og fagnað sigri á síðustu sjö sumarleikum. Trínidad og Tóbagó og Bretland komust einnig í úrslit.

Oscar Pistorius og félagar hans í suður-afrísku sveitinni náðu ekki að ljúka keppni en Ofentse Mogawane liðsfélagi Oscar féll eftir að að hafa rekist á Vincent Mumo Kiilu frá Kenýa. Pistorius er eins og kunnugt er með gervifætur og eru þeir íslensk framleiðsla – frá fyrirtækinu Össur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×