Sport

Bretar opnuðu Ólympíuleikana á sigri

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Byrjunarlið Breta í Wales.
Byrjunarlið Breta í Wales. Nordicphotos/AFP
Kvennalandslið Breta í knattspyrnu vann sigur á Nýja-Sjálandi í fyrsta viðburði Ólympíuleikanna í London sem settir verða formlega á föstudag.

Knattspyrnukeppni leikanna hófst í dag en fyrsti leikur dagsins var viðureign kvennalandsliða Breta og Nýja-Sjálands. Leiknum, sem fram fór á Þúsaldarleikvanginum í Wales, lauk með 1-0 sigri Breta.

Leikurinn var einnig sögulegur fyrir þær sakir að í fyrsta skipti tefldu Bretar fram kvennalandsliði. Í hinum leik riðilsins, sem leikinn var á sama velli, vann Brasilía stórsigur á Kamerún, 5-0. Marta skoraði tvö marka brasilíska liðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×