Innlent

Dalla verður aðstoðarframkvæmdastjóri fjölmiðlanefndar

Dalla Ólafsdóttir, til hægri, við setningarathöfn föður síns.
Dalla Ólafsdóttir, til hægri, við setningarathöfn föður síns.
Dalla Ólafsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarframkvæmdastjóri og lögfræðingur fjölmiðlanefndar en hún er dóttir Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands.

Dalla mun hefja störf þann 1. júní næstkomandi. Dalla lauk prófi frá lagadeild Háskóla Íslands árið 2008. Þá lauk hún B.A prófi í stjórnmálafræði frá sama skóla árið 2002.

Frá árinu 2009 hefur Dalla starfað sem lögfræðingur hjá ASÍ. Hún hefur verið formaður yfirkjörstjórnar Kópavogs frá árinu 2010 og starfaði sem lögfræðingur hjá Samkeppniseftirlitinu að loknu lagaprófi og fram á mitt ár 2009.

Alls bárust 35 umsóknir um starfið, en 3 umsækjendur ákváðu að draga umsókn sína til baka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×