Innlent

Sigríður Jónsdóttir hlaut Rauðu hrafnsfjöðrina

Ljóðskáldið Sigríður Jónsdóttir tekur við Rauðu Hrafnsfjöðrinni.
Ljóðskáldið Sigríður Jónsdóttir tekur við Rauðu Hrafnsfjöðrinni. mynd/Krummi
Ljóðskáldið Sigríður Jónsdóttir hlaut verðlaun lestrarfélagsins Krumma í gær fyrir forvitnilegustu kynlífslýsingu ársins í íslenskum skáldverkum.

Sigríður hlaut verðlaunin fyrir ljóðið „Eins og blíðasti elskhugi" í bókinni Kanill sem gefin er út af Sæmundi.

Karl Blöndal afhenti Sigríði Rauðu hrafnsfjöðrina en hún hefur verið afhend frá árinu 2007. Rithöfundurinn Eiríkur Örn Norðdahl hlaut verðlaunin þá. Elísabet Jökulsdóttir, Hermann Stefánsson og Steinar Bragi hafa einnig hlotið verðlaunin.

Verðlaunalýsingin er svohljóðandi:

Sigríður Jónsdóttir - Kanill

Eins og blíðasti elskhugi

Ég treysti honum því ég þekki hann.

Hann þekkir mig og veit hvað ég þarf.

Hann sýnir sig

ófeiminn eins og bráðger foli

ógeltur í apríl.

Ungur og hraustur með sperrtan böll

tilbúinn að bíða

viljugur að hlakka til.

Hann ber kremið á kónginn á sér.

Ég horfi á

sjálf ekki til í að sýna neitt.

En hann er ekki frekur og gerir ekki kröfur.

Þá finn ég töfra karlmannsins

og sprota hans

leggjast yfir mig.

Ókunnug efni streyma út í blóðið.

Munnvatn spýtist úr kirtlum.

Hann penslar á mér skautið með limkollinum

og allir lásar falla

klikk klikk klikk

Kannski verður það vont.

Hann leitar fyrir sér eins og maður á ís.

Maður með broddstaf.

Hann heldur utan um mig.

Ég held utan um hann og kem til hans meðan hann bíður.

Þegar hann kemur inn í mig

lætur líkaminn eins og hann hafi þráð það lengi

ekki tvær mínútur

búinn að gleyma að þarna var allt þurrt og lukt.

Ólíkindatól.

Elskhugi minn veit betur.

Hann þekkir mig betur en sig.

Hann fer eins og maður í djúpum snjó.

Stígur hægt niður og kannar.

Þar til öllu er óhætt.

Þegar karlinn hefur komið sér öllum fyrir

þegar ég hef meðtekið hann allan og vil meira

kemur hann og sækir laun blíðu sinnar.

Hann er bestur.

Þú ert bestur

segi ég.

Hann segir ekki neitt.

Hann gerir það sem hann meinar

og segir það sem hann vill."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×