Innlent

Nýfæddar stúlkur geta vænst þess að lifa lengur en drengir

Á síðasta ári gátu nýfæddir drengir hér á landi vænst þess að ná að meðaltali 79,9 ára aldri en stúlkur 83,6 ára aldri.
Á síðasta ári gátu nýfæddir drengir hér á landi vænst þess að ná að meðaltali 79,9 ára aldri en stúlkur 83,6 ára aldri. fréttablaðið/Pjetur
Árið 2011 létust 1.985 einstaklingar sem búsettir voru á Íslandi, 998 karlar og 987 konur. Dánartíðni var 6,2 látnir á hverja 1.000 íbúa og lækkaði lítillega frá árinu 2010. Þetta kemur fram á vef hagstofunnar. Þar segir einnig að á síðasta ári gátu nýfæddir drengir hér á landi vænst þess að ná að meðaltali 79,9 árum í aldri en stúlkur 83,6 árum. Þá var ungbarnadauði á Íslandi 0,9 börn af hverjum 1000 lifandi fæddum á síðasta ári en var 2,2 börn af hverjum 1000 lifandi fæddum árið 2010.

„Lífslíkur íslenskra karla hafa batnað mjög á undanförnum árum. Frá árinu 2000 hafa þeir bætt við sig rúmlega tveimur árum í meðalævilengd. Árið 2010 var meðalævilengd íslenskra karla 79,5 ár og skipuðu þeir þriðja sætið meðal Evrópuþjóða það ár. Í fyrsta sæti voru karlar í Sviss en þar gátu nýfæddir drengir vænst þess að verða 79,9 ára. Styst er meðalævilengd evrópskra karla í Úkraínu (62,0 ár), Rússlandi (62,8 ár) og Hvíta-Rússlandi (64,7 ár)," segir á vef Hagstofunnar.

Þar segir einnig að lengi vel hafi lífslíkur íslenskra kvenna verið hæstar í heiminum en þær hafi dregist nokkuð afturúr stallsystrum sínum í Evrópu á þessari öld. „Ástæðan fyrir því er hraðari aukning ævilengdar í nokkrum Evrópulöndum. Árið 2010 var meðalævilengd íslenskra kvenna 83,5 ár og skipuðu þær níunda sætið meðal Evrópuþjóða. Elstar evrópskra kvenna verða konur á Spáni (85,3 ár), Frakklandi (85,0 ár) og Sviss (84,6 ár). Meðalævilengd evrópskra kvenna er styst í Moldóvu (73,4 ár) og Úkraínu (74,3 ár)."

Nánar á vef Hagstofunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×