Segja að lögreglan gangi gegn tilmælum Ögmundar 21. febrúar 2012 10:48
Hagsmunasamtök heimilanna hafa sent kvörtun til Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra vegna ákvörðunar embættis lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um að taka ekki við kvörtunum vegna vörslusviptinga fjármálafyrirtækja. Samtökin segja að þetta geri embættið þrátt fyrir tilmæli ráðherra frá 28. júní síðastliðnum þar sem fram kemur að: ,,telji einhver sig eiga skýlausan rétt á að fá umráð eignar sem er í vörslu annars þarf hinn fyrrnefndi almennt að leita til opinbers aðila til að fá þessa heimild sína staðfesta". Samtökin vísa í bréf frá Jóni H.B. Snorrasyni, aðstoðarlögreglustjóra og segja að í því gangi hann beinlínis gegn tilmælum ráðherrans. Í bréfinu segir að starfsmönnum LRH beri að vísa frá ,,kærum á hendur fjármögnunaraðila vegna vörslusviptingar fyrir þjófnað, nytjastuld, gertæki og eitthvað annað brot". Hagsmunasamtökin telja að „innanríkisráðherra beri að skýra þessi mál fyrir undirmönnum sínum, í ljósi þess að samkvæmt tilmælum ráðherra sé dómsúrskurðar þörf áður en vörslusvipting getur farið fram. Samkvæmt 2. gr. stjórnarskrárinnar fara önnur stjórnvöld með framkvæmdavaldið en ekki einstaklingar í lögskiptum sín á milli." Því segja samtökin að vörslusviptingar fjármálafyrirtækja stangist því á við ákvæði stjórnarskrárinnar, „svo og ákvæði laga um aðför (nr. 90, 1989), en þar kemur skýrt fram að dómsúrskurð þurfi til slíkra aðgerða." Þá er bent á að Hæstiréttur hafi í vikunni dæmt afturvirka vaxtaútreikninga af áður gengisbundnu láni ólögmæta. „Enn ríkir óvissa um áhrif dómsins auk þess sem HH telja vænlegast að bíða fleiri dóma, þar sem enn er ekki ljóst hvaða vextir eiga að gilda. Það má ljóst vera að meint vanskil í samningum eru hugsanlega ekki til staðar og því nauðsynlegt að fá dómsúrskurð um álitaefnið. Vegna allrar þessarar óvissu, svo og tilmæla innanríkisráðherra ætti það því að vera skylda löggæslunnar sem hluta framkvæmdavaldsins að taka strangt á brotum bílalánafyrirtækjanna í þessum málum."
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Sjá meira