Innlent

Ekkert nammi í Mosó fyrr en eftir hálf tvö

Öskudagurinn er á morgun og þá tíðkast víða að krakkar gangi á milli fyrirtækja og fái sælgæti eða aðra umbun fyrir söng. Í tilkynningu frá skólastjórnendum í Mosfellsbæ er bent á að þar í bæ sé kennsla í skólum til klukkan 13:20 á öskudag.

Því séu börn sem komi fyrir þann tíma í fyrirtæki líklegast að skrópa í skólanum eða þá úr öðrum sveitarfélögum. Þeim tilmælum er því beint til fyrirtækja að þau gefi krökkum ekki sælgæti fyrr en eftir að skóla lýkur.

Í sumum skólum á höfuðborgarsvæðinu er þó gefið frí allan daginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×