Skófar kom upp peningaskápaþjófa 21. febrúar 2012 16:43
Þrír karlar á þrítugsaldri hafa játað að hafa brotist inn á tveimur stöðum í austurborginni í fyrrinótt og stolið peningaskápum. Skófar kom upp um þá en þeir hafa allir komið við sögu lögreglu áður. Þjófarnir fóru tómhentir frá fyrri staðnum því ekki tókst þeim að opna peningaskápinn sem þar var að finna og eins reyndist hann vera of stór og þungur til að flytja á annan stað þar sem halda mætti verkinu áfram. „Þrátt fyrir þetta neituðu mennirnir að gefast upp enda brotavilji þeirra mjög einbeittur. Þeir fóru því í beinu framhaldi og brutust inn hjá öðru fyrirtæki á svipuðum slóðum en þar var að finna tvo peningaskápa, öllu minni, sem mennirnir tóku með sér af vettvangi. Þessu næst var ekið á afvikinn stað og þar voru skáparnir brotnir upp en í þeim báðum var að finna reiðufé. Því var skipt bróðurlega á milli mannanna sem síðan héldu til síns heima," segir í tilkynningu frá lögreglu. Eftir að lögreglu barst tilkynning um innbrotin þennan sama morgun var á litlu að byggja við rannsókn málsins utan þess að skófar fannst á vettvangi. „Það og brjóstvit lögreglumanna leiddi þó til þess að skömmu síðar var bankað upp á hjá manni sem hefur áður komist í kast við lögin. Sá kom svefndrukkinn til dyra og var lítt um þessa heimsókn gefið. Í forstofu hans var hinsvegar að finna skó sem ástæða þótti til að skoða nánar og þá tók hringinn að þrengja en húsráðandi var handtekinn og fluttur á lögreglustöð. Annar maður var svo vakinn upp af værum blundi skömmu seinna í öðru húsi á höfuðborgarsvæðinu en hann var sömuleiðis viðriðinn málið og því færður til yfirheyrslu. Hjá þeim báðum fundust peningar sem mennirnir höfðu stolið úr peningaskápunum. Þriðji maðurinn var svo handtekinn um hádegisbil en sá var á fótum þegar lögreglan birtist heima hjá honum. Viðkomandi hafði þegar eytt sínum hluta af ránsfengnum en peningana notaði hann meðal annars til að kaupa sér áfengi." Bæði innbrotin teljast upplýst og liggur játning mannanna fyrir eins og áður segir. Tekist hefur að endurheimta meirihlutann af ránsfengnum en það verður að segjast að tímakaup þremenninganna við þessa vafasömu iðju var frekar lélegt enda voru ekki miklir fjármunir í peningaskápunum. Þess má geta að mennirnir hafa allir áður komið við sögu hjá lögreglu.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Sjá meira