Mikill skortur á tækjum í skólastofur - sjálfir keypt skjávarpa Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 21. febrúar 2012 18:30
Grunnskólakennarar eru margir orðnir þreyttir á lélegum tækjabúnaði skólanna sem hefur verið að úreldast síðustu ár vegna sparnaðar. Dæmi eru um að kennarar hafi sjálfir keypt skjávarpa í kennslustofur vegna skorts á tækjum. Á sama tíma og fregnir berast af tilraunaverkefnum í skólum þar sem nemendur hafa fengið spjaldtölvur til notkunar, standa kennarar í borginni margir frammi fyrir því að geta lítið nýtt sér tölvur við kennsluna, þar sem hluti af tækjabúnaði skólanna er orðinn úreltur. Reykjavíkurborgin hefur frá hruni sett mjög takmarkað fjármagn í tækjakaup. Austurbæjarskóli hefur til að mynda engin ný tæki fengið frá borginni síðan árið 2008. Í skólanum er aðeins eitt tölvuver fyrir hátt í fimm hundruð nemendur. Elstu tölvurnar eru orðnar tíu ára gamlar. „Ég myndi áætla að svona einn þriðji af heildarfjöldanum væri alveg úreltur," segir Ragnar Örn Jónsson, verkefnastjóri tölvumála í Austurbæjarskóla. Hann segir slakan tækjakost skólans hafa áhrif á kennsluna. „Kennarar eru orðnir mjög þreyttir á þessu ástandi. Það má segja að þeir bölvi á hverjum degi. Það er rætt um þetta á hverjum degi í skólanum," segir Ragnar. Til að halda tölvuverinu gangandi þá hefur skólinn leitað til fyrirtækja og fengið frá þeim notaðar tölvur sem þau hafa verið að losa sig við. Um helmingurinn af tölvum skólans er þaðan kominn. Þá eru aðeins fimm skjávarpar í skólanum öllum. „Hér hefur verið það mikill skortur að kennarar hafa keypt sjávarpa til að nota sjálfir í kennslu," segir Ragnar. Harpa Rut kennir nemendum á unglingastig skólans. Hún segist lítið geta nýtt sér tölvur við kennsluna. „Við erum ekkert að kenna með þessum aðferðum sem er verið að mæla með í dag. Maður nær ekki að hafa kennsluna eins fjölbreytta eins og annars væri." Nemendur nái ekki á nýta sér það fjölbreytta efni sem í boði er á netinu. „Þau geta verið eins og í sögunni að skoða seinni heimsstyrjöldina til dæmis hvað var að gera, taka test og færa til lönd. Þetta eru við enn bara að gera með liti og blað. Þó að árangurinn geti alveg orðið svipaður þá er þetta ekki eins spennandi og maður vildi hafa það," segir Harpa Rut að lokum.
Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglinn í Þýskalandi Erlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent „Það er mikið verið að suða“ Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira