Innlent

Íslenskur sjómaður handtekinn í Kanada - ofurölvi á bar með tvo hnífa

St. John er nokkuð fallegur bær.
St. John er nokkuð fallegur bær.
Íslenskur sjómaður var handtekinn í bænum St. John á Nýfundnalandi í Kanada í gærkvöldi eftir að hann varð ofurölvi á bar þar í bæ og féll af stólnum sínum. Hann sýndi einnig af sér ógnandi hegðun gagnvart starfsmönnum barsins samkvæmt kanadíska fréttavefnum vocm.com.

Þegar lögreglan kom til þess að handtaka manninn, sem er 34 ára gamall þriggja barna faðir samkvæmt því sem fram kemur á fréttavefnum, fundust tveir hnífar á manninum. Hann útskýrði þá fyrir lögreglunni að hann væri sjómaður og hann væri með hnífanna vinnu sinnar vegna. Maðurinn fékk að gista fangageymslur lögreglunnar. Hann játaði svo sakargiftir þó hann mundi ekkert eftir þeim.

Maðurinn átti svo að leggja af stað með skipi sínu síðdegis í dag á staðartíma. Hann missti þó af því. Hann var þá handtekinn og verður flogið heim til Íslands auk þess sem hann þarf að greiða 500 kanadíska dollara í sekt og dúsa í fangelsi í einn dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×