Formaður slitastjórnar Dróma: Segist aðeins hafa séð fimm kvartanir 22. febrúar 2012 20:07
Formaður slitastjórnar Dróma, Hlynur Jónsson, segir félagið aðeins hafa fengið að sjá fimm kvartanir á tveimur fundum sem félagið hefur átt með Umboðsmanni skuldara. Hlynur var í viðtali við Kastljós fyrr í kvöld þar sem hann sagði meðal annars að það kæmi sér ekki á óvart að fleiri kvartanir hafi borist, eftir að umfjöllun um félagið hófst fyrir nokkrum vikum, þá sérstaklega í ljósi þess að það hafi verið beinlínis auglýst eftir þeim, að hans sögn. Hann segist hinsvegar gera athugasemdir við það að kvartanirnar, sem um ræðir, hafi ekki borist inn á þeirra borð fyrir utan þessar fimm sem hann vitnaði til í upphafi viðtalsins. „Ég geri ekki lítið úr því ef viðskiptavinir telji sig hafa yfir einhverju að kvarta en geri athugasemdir við það að þær berist ekki inn á okkar borð," sagði Hlynur. Hann segir ennfremur að það sé ekki rétt að Arion banki hafi freistast til þess að kaupa lánasöfnin af félaginu. Hann bendir hinsvegar á að þegar Drómi varð til, eftir að SPRON og Frjálsi fjárfestingabankinn fóru í þrot árið 2009, hafi félagið haft til umráða skuldir níu þúsund einstaklinga. Félagið hafi hinsvegar selt lánasöfn fyrir 15 milljarða til íbúðalánasjóðs, auk þess sem eignarhaldsfélag seðlabankans innleysti stóran hluta af lánunum. Því séu fjögur þúsund lán eftir í þrotabúinu eins og staðan er í dag. Hlynur segir ennfremur að það sé ekki rétt að þrotbúið hafi ekki hag af því að fólk greiði ekki af lánum sínum áfram. Verðmætin séu fólgin einmitt í því að skuldarar geti staðið undir lánum sínum. Þá bendir hann ennfremur á að Drómi sé samstafsaðili af öllum þeim úrræðum sem séu til boða eins og 110 prósent leiðina og sértæka skuldaaðlögun og fleira. Spurður hver eigi Dróma svarar Hlynur því til að það séu að mestu leytinu til erlendir kröfuhafar. Evrópskir bankar aðallega. Hann tekur hinsvegar fram að allt það fé sem innheimtist hjá Dróma renni til Arion banka. Ef það nást ekki verðmæti úr þrotabúinu endar ábyrgðin hjá ríkissjóði. Því þurfi skattgreiðendur að borga brúsann að lokum fáist ekki nægar innheimtur. Hann líti því svo á að þrotabúið sé einnig að vinna fyrir skattgreiðendur. Hægt er að hofa á viðtalið við Hlyn í Kastljósinu hér.
Mest lesið Annar bíll mögulega í „samfloti“ þegar banaslysið varð Innlent Vara við því að færð spillist í kvöld Innlent „Þetta hefði ekki þurft að fara svona“ Innlent Sáttur við að staða hans sé auglýst Innlent Skoða að ná Lúðvík upp áður en sprungan verður fyllt Innlent Lögreglan leitar manns Innlent „Maður eiginlega skammast sín eftir á að hafa verið stressaður“ Innlent Rukka ekki fyrir 36 tíma leikskóladvöl Innlent Seldi Pokémon-spjald á yfir tvo milljarða Erlent Ungir menn sátu fyrir bjórsala og rændu tugum vodkaflaska Innlent Fleiri fréttir Loka sundlaugum fram yfir helgi vegna kuldans Hvítt í kortunum og snjómokstursteymið í startholunum Getur ekki séð að „heimsendaspár gagnrýnendanna“ séu að rætast „Algjörlega óboðlegt hvernig þetta hefur verið undanfarin ár“ Hafna kröfum bálstofunnar um endurskoðun starfsleyfis „Þetta hefði ekki þurft að fara svona“ Enn enginn matur á boðstólum félagsmiðstöðvanna Sáttur við að staða hans sé auglýst Holtavirkjun og Skrokkölduvirkjun í orkunýtingarflokk Neitar að hafa nauðgað stúlku milli trjáa Annað hvort í pólitíkina eða á eftirlaun Fleiri reita hár sitt yfir skorti á þrifum en nagladekkjum Kvikuhlaup og eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Grásleppan hleypir upp störfum þingsins Hættur sem framkvæmdastjóri Framsóknar Fyrrverandi markvörður vill fram fyrir Miðflokk Viðgerð vegna eldsvoða að ljúka og Landspítali fær pláss Ungir menn sátu fyrir bjórsala og rændu tugum vodkaflaska Stærstur hluti foreldra falli algjörlega utan afsláttarkerfis Lögreglan leitar manns Annar bíll mögulega í „samfloti“ þegar banaslysið varð Ný leið í leikskólamálum kynnt og von á snjókomu í kvöld Rukka ekki fyrir 36 tíma leikskóladvöl Deila um vegslóða fyrir Hæstarétt Körfuboltastjarna íhugar framboð í Garðabæ Íhugar alvarlega formannsframboð hjá Vinstri grænum Ástæða til að forðast hinn tvöfalda lás Komi öllum við hverjir kaupa vændi eða ætli að gera það Vara við því að færð spillist í kvöld Sundhöllinni lokað á meðan píparar ráða ráðum sínum Sjá meira