Innlent

Halda minningu Ólafs á lofti á Rósenberg

JHH skrifar
Sout River Band með Ólafi heitnum.
Sout River Band með Ólafi heitnum.
Tónlistarhátíðin Reykjavik Folk Festival verður haldin í þriðja sinn á Rósenberg dagana 7. - 10. mars næstkomandi.

Alþýðu- og heimstónlistarhátíðin Reykjavik Folk Festival er hugarfóstur Ólafs Þórðarsonar tónlistarmanns en hann var framkvæmdastjóri hátíðarinnar og helsti hugmyndasmiður þegar hún var fyrst haldin árið 2010 á tíu ára afmæli South River Band. Félagar Ólafs úr hljómsveitinni í samstarfi við Café Rósenberg og RÚV halda nú minningu Ólafs á lofti og blása til sannkallaðrar tónlistarveislu á Rósenberg. Metnaður Ólafs var að gera hátíðina að árlegum vettvangi hljómsveita sem flytja alþýðutónlist, þjóðlög, blús og heimstónlist eða blöndu af þessu öllu.

Í ár fær hátíðin á sig alþjóðlegri blæ en áður. Nokkrir góðir gestir koma erlendis frá, þjóðlagasveitin Kvonn frá Færeyjum, hljómsveitin Kryss sem er skipuð dönskum, norskum og sænskum meðlimum auk hinna heimsþekktu Koppel feðga, Benjamin og Anders frá Danmörku.

Sextán hljómsveitir koma fram á hátíðinni en meðal íslenskra tónlistarmanna eru KK, Svavar Knútur, hljómsveitin Melchior, Gunni Þórðar, Guðrún Gunnarsdóttir, Varsjárbandalagið, Gæðablóð auk bakhjarla hátíðarinnar South River Band.

Hægt er að kaupa passa sem gildir á öll kvöld hátíðarinnar á www.midi.is en miðar á staka tónleika verða seldir við innganginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×