Innlent

Þvottavél á hreyfingu olli vatnsleka

Þvottavél á baðherbergi í fjölbýlishúsi í Breiðholti tók upp á því um eitt leitið í nótt, að labba af stað og fyrir hurðina inn á baðið. Um leið slitnaði vatnsslangan inn á vélina þannig að vatn fór að leka og hringdi húsráðandi þá á slökkviliðið.

Slökkviliðsmönnum tókst að ryðjast inn í baðherbergið og stöðva lekann áður en hann ylli víðtækum skemmdum, og síðan var þvottavélin róuð niður og sett á sinn stað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×