Innlent

Lést eftir að hafa dregið félaga sinn undan brennandi bílflaki

Laugardaginn 18. febrúar sl. lést 19 ára Íslendingur, Gunnar Örn Gunnarsson, í bílslysi í Tansaníu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fjölskyldu Gunnars Arnar.

Tildrög slyssins voru þau að tvær stórar jeppabifreiðar, önnur full af farþegum, skullu saman á sveitavegi skammt frá bænum Kikatiki, í nágrenni við Kilimanjaro þjóðgarðinn.

Í fyrstu var talið að danskur félagi Gunnars Arnar væri einn alvarlega slasaður, en hann kastaðist út úr bílnum og varð undir honum.

Í kjölfarið kviknaði í eldsneyti sem lak úr bifreiðunum og tókst Gunnari Erni, með hjálp annars vinar síns, að draga félaga sinn undan flakinu og slökkva eldinn. Meðan beðið var eftir hjálp með þyrlu hneig Gunnar Örn skyndilega niður og missti skömmu síðar meðvitund. Þegar læknar loks komu á slysstaðinn var ljóst að hann var með alvarleg höfuðmeiðsl og miklar innvortis blæðingar sem ógjörningur reyndist að stöðva. Hann lést áður en komið var á sjúkrahús.

Gunnar Örn, sem bjó með fjölskyldu sinni í Helsingborg í Svíþjóð, var á heimleið með tveimur dönskum vinum sínum eftir að þeir höfðu gert atlögu að tindi Kilimanjaro fjallsins. Tveimur þeirra var snúið við vegna veikinda skammt frá tindum en Gunnar Örn komst einn alla leið.

Hann var enda vel á sig kominn; vel kunnur í hópi hjólabretta- og snjóbrettaiðkenda fyrir framúrskarandi hæfni og Íslandsmeistari í hnefaleikum í sínum flokki þegar hann lést. Hann lýsti innilegri gleði sinni í símtali við móður sína skömmu áður en slysið varð með þessum orðum:

„Nú finnst mér ég vera orðinn fullorðinn."


Tengdar fréttir

Íslenskur piltur lést í umferðarslysi í Tansaníu

Íslenskur maður lést í alvarlegu umferðarslysi á laugardaginn í Tansaníu. Utanríkisráðuneytið staðfesti í samtali við Vísi að maðurinn hefði látist en vildi ekki gefa upp nánari upplýsingar um málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×