Innlent

Mikil aukning á fjölda þeirra sem fá húsaleigubætur

Mikil aukning hefur orðið á fjölda þeirra einstaklinga sem fá húsaleigubætur á undanförnum fimm árum. Rúmlega 9.500 manns fengu slíkar bætur árið 2007 en fjöldinn var kominn í rúmlega 14.000 manns í fyrra.

Þetta kemur fram í svari velferðarráðherra við fyrirspurn frá Briki Jóni Jónssyni þingmanni Framsóknarflokksins á Alþingi. Í svarinu kemur einnig fram að kostnaður hins opinbera hefur aukist eins og fjöldinn.

Kostnaðurinn var rúmlega 2,1 milljarður króna fyrir fimm árum en var kominn í rúmlega 3,6 milljarða króna í fyrra. Ef sérstökum húsaleigubótum er bætt við hækkar talan um milljarð fyrir árið í fyrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×