Innlent

Reykræsta þurfti bakarí í nótt

Bakaríi í Álfheimum í Reykjavík fyllltist af reyk í nótt. Kallað var á slökkviliðið um þrjúleitið og kom þá í ljós að eldur logaði glatt í ruslatunnu fyrir utan bakaríið og hafði reykinn lagt inn um glugga.

Eldurinn var slökktur og var bakaríið reykræst. Ekki er vitað hvort þar urðu skemmdir vegna reyks.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×