Innlent

Bensínlítrinn kostar yfir 255 krónur hjá N1

Olíufélagið N1 hefur hækkað bensínlítrann um fimm krónur og kostar hann nú röskar 255 krónur. Dísillítrinn var líka hækkaður um tæpar fimm krónur hjá N1 og kostar nú 263,50 kr.

Bensínlítrinn hjá Shell var kominn upp í tæpar 253 krónur í gærkvöldi, sem var þá rúmlega tveimur krónum hærra verð en hjá öðrum félögum, eða þartil N1 hækkaði verðið enn meira.

Forstjóri N1 segir að viðbúið sé að bensínlítrinn fari í allt að 260 krónur á næstu dögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×