10 ára hetja bjargaði ársgömlu barni frá drukknun Jón Hákon Halldórsson skrifar 24. febrúar 2012 11:48 Frá Vatnaveröld þar sem atvikið varð. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Það mátti ekki tæpara standa þegar tíu ára gömul stúlka bjargaði ársgömlu barni frá drukknun í Vatnaveröld í Reykjanesbæ í gær. Stúlkan, sem heitir Anika Mjöll Júlíusdóttir, var á sundæfingu þegar atvikið gerðist. „Hún var að synda þegar hún sér barnið ofan í lauginni og hún heldur fyrsta að þetta sé bara dúkka en áttar sig fljótlega á því að þetta er ungabarn," segir Þórunn Ósk Haraldsdóttir, mamma Aniku. Anika hafi þá tekið hana upp og synt með hana að bakkanum. Þegar að bakkanum var komið sá Anika að barnið andaði ekki og hún sló þá í bakið á henni til að freista þess að koma vatni út úr henni og ná öndun í gang. „svo kemur yfirsundþjálfarinn og sundþjálfarateymið og tekur yfir," segir Þórunn Ósk. Þórunn Ósk segir að Anika hafi ekki lært skyndihjálp á skyndihjálparnámskeiði, en hún vísar í orð sundþjálfarans þegar hún segir að svo virðist sem allt hafi verið rétt gert í þessu tilfelli. „Það var haldinn fundur strax á eftir og ætli þeim verði ekki bara kennt þetta í framhaldinu, af því að þetta getur náttúrlega alltaf komið fyrir," segir Þórunn. Þórunn segir að Anika sé rosalega stolt en hafi líka verið rosalega lítil í sér í gær eftir þetta atvik.
Mest lesið Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Regnbogafánar, jafnaðargeð og valkyrjuvá í Hafnarfirði Innlent Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Erlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Regnbogafánar, jafnaðargeð og valkyrjuvá í Hafnarfirði Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Sjá meira