Innlent

10 ára hetja bjargaði ársgömlu barni frá drukknun

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Frá Vatnaveröld þar sem atvikið varð. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Frá Vatnaveröld þar sem atvikið varð. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Það mátti ekki tæpara standa þegar tíu ára gömul stúlka bjargaði ársgömlu barni frá drukknun í Vatnaveröld í Reykjanesbæ í gær. Stúlkan, sem heitir Anika Mjöll Júlíusdóttir, var á sundæfingu þegar atvikið gerðist.

„Hún var að synda þegar hún sér barnið ofan í lauginni og hún heldur fyrsta að þetta sé bara dúkka en áttar sig fljótlega á því að þetta er ungabarn," segir Þórunn Ósk Haraldsdóttir, mamma Aniku. Anika hafi þá tekið hana upp og synt með hana að bakkanum.

Þegar að bakkanum var komið sá Anika að barnið andaði ekki og hún sló þá í bakið á henni til að freista þess að koma vatni út úr henni og ná öndun í gang. „svo kemur yfirsundþjálfarinn og sundþjálfarateymið og tekur yfir," segir Þórunn Ósk.

Þórunn Ósk segir að Anika hafi ekki lært skyndihjálp á skyndihjálparnámskeiði, en hún vísar í orð sundþjálfarans þegar hún segir að svo virðist sem allt hafi verið rétt gert í þessu tilfelli. „Það var haldinn fundur strax á eftir og ætli þeim verði ekki bara kennt þetta í framhaldinu, af því að þetta getur náttúrlega alltaf komið fyrir," segir Þórunn.

Þórunn segir að Anika sé rosalega stolt en hafi líka verið rosalega lítil í sér í gær eftir þetta atvik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×