Innlent

Fundu hestshaus á stöng í Seljahverfi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Atvikið átti sér stað í Breiðholti í Reykjavík.
Atvikið átti sér stað í Breiðholti í Reykjavík.
Kona sem var að viðra hundinn sinn fyrir aftan Krónuna í Jafnaseli í Breiðholti í morgun gekk fram á hrosshaus og stöng. Svo virðist sem hausinn hafi upphaflega verið festur á stöngina því að efsti endinn á stönginni var blóðugur þegar lögreglan kom að. Hann virðist svo hafa dottið af stönginni og lá í jörðinni þegar konan sá hann. Lögreglan fjarlægði stöngina og hausinn.

Ekki er enn vitað hver kom hausnum fyrir á þessum stað og engin skilaboð fylgdu. Þá hefur heldur enginn gefið sig fram með upplýsingar um málið. Þeir sem geta gefið einhverjar upplýsingar geta hringt í síma 4441000.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×