Innlent

Tæplega 500 brautskráðust frá Háskóla Íslands í dag

Frá brautskráningunni í Háskólabíó í dag.
Frá brautskráningunni í Háskólabíó í dag. mynd/hí
Í dag brautskráðust alls 484 nemendur frá Háskóla Íslands en frá því að fyrstu nemendurnir hófu nám í Háskóla Íslands fyrir 101 ári hafa á fimmta tug þúsunda nemenda tekið við prófskírteinum frá skólanum. Kristín Ingólfsdóttir, rektor skólans, vakti athygli á þeim árangri sem skólinn hefur náð á undanförnum fimm árum í ræðu sinni. Það hefði hann gert með því að halda fast við stefnumál og markmið í starfinu þrátt fyrir þrengingar í kjölfar efnahagshruns. Skólinn er á lista með 300 bestu háskólum í heimi.

Í ræðu sinni rakti Kristín dæmi um rannsóknaverkefni kennara og stúdenta sem sum hafa leitt til hagnýtingar. Hún sagði jafnframt að hugaraflinu væru engin takmörk sett. Skólinn myndi leggja kapp á að virkja þetta afl enn frekar með því að leiða saman vísindamenn og stúdenta og þekkingu og reynslu fólks úr atvinnulífinu með það fyrir augum að vinna nýjum hugmyndum brautargengi.

Hún sagði að þótt háskólanám hafi fyrir flesta hagnýtan tilgang, að skapa starfsgrundvöll og lífsafkomu, leynist líka í hugskoti margra löngun til að leita og leiða fram nýja þekkingu, nýjar hugmyndir sem breytt gætu heiminum. Hún lagði áherslu á að slíkar hugmyndir þyrftu ekki að vera byltingakenndar. Þær gætu eins verið einfaldar og smáar uppgötvanir sem gera lífið auðveldara og innihaldsríkara.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×