Innlent

Hefur þú séð 7 ára pilt í grennd við Sundlaugina í Kópavogi?

Pilturinn hvarf frá forráðamönnum sínum fyrir utan Sundlaugina í Kópavogi, á Borgarholtsbraut.
Pilturinn hvarf frá forráðamönnum sínum fyrir utan Sundlaugina í Kópavogi, á Borgarholtsbraut. mynd úr safni
Ungur piltur hvarf frá forráðamönnum sínum fyrir utan sundlaugina í Kópavogi, á Borgarholtsbraut, um klukkan ellefu í morgun. Pilturinn er sjö ára gamall og er klæddur í svartar buxur, bláan jakka, svört stígvéli og er með bláa húfu. Ef einhver veit um ferðir piltsins er viðkomandi beðinn um að hafa samband við föður hans, Ívar, í síma 615-4349 eða lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444-1000.


Tengdar fréttir

Pilturinn kominn í leitirnar

Pilturinn sem leitað var að í grennd við Sundlaugina í Kópavogi, á Borgarholtsbraut, í morgun er fundinn. Ekkert amaði að piltinum, að sögn föður hans, en hann hafði farið heim til vinar síns.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×