Innlent

Sendiherra býður ESB aðstoð Íslendinga við fiskveiðistjórnun

Þórir Ibsen sendiherra Íslands hjá Evrópusambandinu hefur boðið sambandinu aðstoð Íslendinga við að endurskoða og breyta fiskveiðistjórnunarkerfi sambandsins.

Þetta kemur fram í viðtali vefsíðunnar EurActiv við sendiherrann. Þar segir Þórir að ekkert athugavert sé við þetta boð um aðstoð enda hafi Íslendingar meiri reynslu en þjóðir Evrópusambandsins á þessu sviði.

Þórir bendir á að meðan að Ísland stundi sjálfbærar fiskveiðar í gegnum kvótakerfi sitt sé Evrópusambandið í tómu tjóni með stjórnina á sínum fiskveiðum, enda flestir stofnar undan ströndum Evrópu að hruni komnir.

Þá kemur fram í máli Þóris að þótt margt gott megi segja um Evrópusambandið sé sameiginleg fiskveiðistjórn þess ekki þar á meðal. Sú stjórn hafi ekki náð markmiðum sínum.

Ljúka á endurskoðun og breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfi Evrópusambandsins á næsta ári en málið verður til umræðu og afgreiðslu á Evrópuþinginu í ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×