Innlent

Tveir þjófar teknir með gervihnattadisk í fórum sínum

Lögreglan handtók tvo karlmenn, af erlendu bergi brotna, þar sem þeir voru að burðast með stóran gervihnattardisk í Kópavogi í nótt. Hann höfðu þeir tekið ófrjálsri hendi.

Vegna tungumálaörðugleika er ekki vitað hvaðan þeir stálu disknum svo þeir og diskurinn voru fluttir á lögreglustöðina og er þess beðið að túlkur leysi úr málinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×