Innlent

Síminn biðst afsökunar

Síminn.
Síminn.
Símanum þykir leitt að þau mistök urðu að upphaflegu erindi frá kvartanda, sem barst haustið 2008, var ekki svarað fyrr en ári síðar þegar lögmaður kvartanda ítrekaði erindið. Síminn hefur beðist afsökunar á því í svörum sínum til Póst- og fjarskiptastofnunar, en einkum til kvartanda sem hefur fyrir vikið þurft að bíða mun lengur en eðlilegt er eftir niðurstöðu í málinu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Símanum en í Fréttablaðinu í dag var greint frá því að Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) hefur ákveðið að kæra starfsmann Símans til lögreglu fyrir að skoða símtalaskrá fyrrverandi konu sinnar. Þá verður Síminn jafnframt kærður til lögreglu fyrir brot á fjarskiptalögum við meðferð málsins.

Þetta kemur fram í ákvörðun PFS sem birt verður opinberlega í vikunni og Fréttablaðið hefur undir höndum.

Í svari Símans, sem var sent á fjölmiðla í morgun, kemur fram að starfsmaðurinn hafi verið sendur í ótímabundið leyfi.

Hér fyrir neðan má finna svar Símans í heild sinni og í meðfylgjandi hlekk má nálgast frétt Fréttablaðsins.

Tilkynning Símans:

Póst – og fjarskiptastofnun hefur með ákvörðun sem stofnunin sendi frá sér í dag vísað til lögreglu máli, sem snýr að kvörtun á misnotkun starfsmanns Símans á aðstöðu sinni í starfi. Jafnframt átelur Póst- og fjarskiptastofnun Símann fyrir að hafa látið stofnuninni í té „ófullnægjandi og misvísandi upplýsingar"undir rannsókn málsins og sýnt af sér „ámælisvert athafnaleysi" með því að bregðast seint við kvörtun.

Símanum þykir leitt að þau mistök urðu að upphaflegu erindi frá kvartanda, sem barst haustið 2008, var ekki svarað fyrr en ári síðar þegar lögmaður kvartanda ítrekaði erindið. Síminn hefur beðist afsökunar á því í svörum sínum til Póst- og fjarskiptastofnunar, en einkum til kvartanda sem hefur fyrir vikið þurft að bíða mun lengur en eðlilegt er eftir niðurstöðu í málinu.

Þegar ítrekun barst var málið umsvifalaust rannsakað innanhúss hjá Símanum og í öllu unnið eftir verklagsreglum félagsins. Starfsmaðurinn hefur nú verið sendur í ótímabundnið leyfi.

Síminn átti fund með lögreglu í síðustu viku og upplýsti hana um málið. Á þeim fundi kom skýrt fram af hálfu lögreglu að hún er þeirrar skoðunar að atvik sem þetta heyri undir lögreglu en ekki Póst- og fjarskiptastofnun að því er varðar mögulegt brot starfsmannsins. Lögregla lýsti sig jafnframt sammála þeirri skoðun að Símanum hefði verið óheimilt að afhenda umbeðnar upplýsingar öðrum en lögreglu eða ákæruvaldi. Þetta benti Síminn kvartanda á í svari sínu en einnig Póst- og fjarskiptastofnun. Gögn um mögulegt brot starfsmannsins vildi fyrirtækið ekki afhenda Póst- og fjarskiptastofnun með vísan í ákvæði XI. kafla sakamálalaga og 42. grein fjarskiptalaga. Síminn hefur varðveitt gögn málsins og mun veita alla mögulega aðstoð komi til rannsóknar lögreglu.

Hvað sem öðru líður liggur fyrir að þetta mál varð Símanum tilefni til þess að fara yfir verkferla, vinnubrögð og samskipti innanhúss til að tryggja að slíkt endurtaki sig ekki og standa vörð um friðhelgi einkalífs viðskiptavina sinna.


Tengdar fréttir

Starfsmaður kærður til lögreglu og sendur í leyfi

Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) hefur ákveðið að kæra starfsmann Símans til lögreglu fyrir að skoða símtalaskrá fyrrverandi konu sinnar. Þá verður Síminn jafnframt kærður til lögreglu fyrir brot á fjarskiptalögum við meðferð málsins. Þetta kemur fram í ákvörðun PFS sem birt verður opinberlega í vikunni og Fréttablaðið hefur undir höndum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×