Vetrarhátíð í Reykjavík er gengin í garð og Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn tekur þátt um helgina. Gestum er boðið í garðinn sér að kostnaðarlausu á milli klukkan tíu og tólf á laugardag og sunnudag. Eftir hádegi gildir hinsvegar gjaldskrá eins og venjulega. Ýmislegt er í boði í garðinum og geta gestir fengið innsýn inn í hvernig dýr sjá umhverfi sitt í myrkri.
„Hægt verður að fylgjast með músum með augum mjólkursnáksins Flækju og með fjallarottum með augum kattarins. Þá geta gestir athugað hæfni sína í bergmálstækni sem hvalir og leðurblökur nota í myrkri," segir í frétt á heimasíðu garðsins.
„Einnig hefur verið sett upp sýning Myndlistarnema Myndlistarskólans í Reykjavík en þeir dvöldu í garðinum fyrir áramót við að teikna dýr garðsins. Myndirnar má sjá meðal dýranna víða um garðinn," segir ennfremur.
Ókeypis í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn um helgina

Mest lesið


Ingvar útskrifaður úr meðferð
Innlent


Fínasta grillveður í kortunum
Innlent

Litla kaffistofan skellir í lás
Innlent




