Myndbandið er ekki gabb - hellti upp á kaffi og tók svo upp 10. febrúar 2012 17:53 „Ég þurfti nú að fara á fund hérna úti á Egilsstöðum og hafði engan tíma til að fylgjast með þessu. Ég þurfti að gera athugasemd við skattlagninu hjá mér, það átti að tvírukka mig um staðgreiðslu af launum,“ segir Hjörtur meðal annars. „
Þetta er alls ekki sviðsett af mér, það er alveg fráleitt. Þetta er ekkert gabb," segir Hjörtur E. Kjerúlf, sem tók myndbandið af meintum Lagarfljótsormi á dögunum. Um tvær og hálf milljón notenda á YouTube hefur séð myndbandið. Fjölmiðlar víða um heim velta því fyrir sér hvort að myndbandið sé ekki ekta. Bandaríska fréttastofan ABC ræddi við sérfræðing sem sagði í viðtali við stöðina að þetta væri líklega gabb. Hjörtur segir að svo sé ekki. „Þetta var þarna í ánni þegar ég leit út um eldhúsgluggann þarna um morguninn, þá sé ég þetta í ánni, ég veit ekkert hvort þetta var kvikyndi eða eitthvað annað," segir Hjörtur í samtali við þáttinn Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Hann tók þó ekki upp myndavélina strax þegar hann sá meintan Lagarfljótsorm. „Ég byrjaði á því að hella upp á kaffi, og svo sé ég að þetta er á sama stað og að þetta er þarna á einhverju sundi. Ég hugsa með mér að það væri gaman að eiga myndir af þessu. Það er ekki oft sem Lagafljótsormurinn lætur sjá sig," segir hann. Ekki sé mögulegt að þetta hafi verið gabb af hans hálfu enda var hann nýbúinn að fá kvikmyndatökuvélina. „Ég setti þetta ekki á netið. Ég fór með það hérna upp á fréttastofu á Egilsstöðum og því var spólað af vélinni hjá mér inn á tölvuna hjá RÚV. Enda kann ég ekki á tölvur og nota þær ekki neitt." Hann segist ekki hafa fylgst með verunni lengi enda hafi hann þurfti að útrétta. „Ég þurfti nú að fara á fund hérna úti á Egilsstöðum og hafði engan tíma til að fylgjast með þessu. Ég þurfti að gera athugasemd við skattlagninu hjá mér, það átti að tvírukka mig um staðgreiðslu af launum. Ég þurfti að fara á sýlsuskrifstofuna og rétta mitt mál," segir hann meðal annars í viðtalinu.Hægt er að hlusta á viðtalið við Hjört með því að smella á hlekkinn hér að ofan.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Fleiri fréttir „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi Sjá meira