Enski boltinn

Suarez strunsaði framhjá Evra

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Luis Suarez tók ekki í hönd Patrice Evra þegar leikmenn Manchester United og Liverpool heilsuðust fyrir leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Suarez gekk einfaldlega fram hjá Evra en sá síðarnefndi brást illa við - tók í upphandlegg Suarez sem lét eins og ekkert hefði í skorist.

Rio Ferdinand neitaði einnig að taka í hönd Suarez og hunsaði hann einfaldlega.

Suarez er nýbúinn að taka út átta leikja bann fyrir að vera með kynþáttaníð í garð Evra í leik liðanna fyrir áramót.

Mikið hefur verið fjallað um þá í aðdraganda leiksins og bæði Kenny Dalglish, stjóri Liverpool, og Alex Ferguson, stjóri United, áttu ekki von á öðru en að þeir Evra og Suarez myndu heilsast fyrir leikinn. Annað kom á daginn.

Nordic Photos / Getty Images

Tengdar fréttir

Rooney með tvö í sigri United á Liverpool

Manchester United vann sanngjarnan 2-1 sigur á Liverpool í stórslag helgarinar í ensku úrvalsdeildinni. Wayne Rooney skoraði bæði mörk United í upphafi seinni hálfleiks.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×