Fyrri stofnfundur Breiðfylkingarinnar haldinn í dag Jónas Margeir Ingólfsson skrifar 12. febrúar 2012 20:15
Í dag var haldinn stofnfundur Breiðfylkingarinnar sem fulltrúar Hreyfingarinnar, Frjálslynda flokksins og fleiri aðila standa að. Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, segir nú hópinn kanna hvort hægt verði að hefja samstarf undir formerkjum nýs stjórnmálaafls. Breiðfylkingin á að verða nýr samstarfsvettvangur um framboð til næstu Alþingiskosninga. Stofnfundir hennar eiga að vera tveir en sá fyrri var haldinn í dag. Þá á málefnavinna að taka við í nefndum sem eiga að leggja fram drög að málefnaskrá fyrir seinni stofnfundinn. „Já þetta virkar þá þannig að framhaldsstofnfundur samþykki umsóknir annara hreyfinga og stjórnmálahreyfinga að fylkingunni. Ef þetta fer allt vel af stað og samstaða næst um málefnin mun Hreyfingin væntanlega sækja um aðild að þessum stjórnmálasamtökum. Hún mun hins vegar halda áfram að vera til og ekkert ákveðið um hvernig þetta endar allt saman," segir Margrét Tryggvadóttir þingmaður Hreyfingarinnar. Helsta deilumál fylkingarinnar virðist þó vera Evrópusambandið. Margrét segist ekki vita hvort félagarnir nái saman í því máli. „Nú er verið að rífast um ESB svo ég er ekkert sérlega bjartsýn," segir Margrét og hlær en bætir við að í ljós verði að koma hvort sátt náist um málið. ,,Tillagan sem við settum fram snýst um að við værum ósammála og hefðum hvert okkar skoðun. Lýðræðið ætti að ráða, fólk fengi upplýsingar og þjóðin muni ráða þessu." Margrét segir Hreyfinguna vilja halda áfram sinni vinnu með Breiðfylkingunni. „Það er svona tilraun sem við erum að gera núna. Að sjá hvort við getum unnið með fleiri Hreyfingum og einstaklingum sem hafa látið samfélagið sig varða."
Mest lesið Látinn eftir líkamsárás en árásarmaðurinn gengur laus Innlent Greta Thunberg á leið heim til Svíþjóðar Erlent Orri Harðarson er allur Innlent „Þetta er glórulaust rugl í ráðherra“ Innlent Níu látnir eftir skotárás í Austurríki Erlent Leitin ekki enn borið árangur Innlent Rekur bólusetningaráð stjórnvalda á einu bretti Erlent Rafmagnslaust víða á Suðurlandi Innlent Sendir tvö þúsund þjóðvarðliða til viðbótar til Los Angeles Erlent Leita týnds göngumanns Innlent Fleiri fréttir Persónuvernd lagði Landlækni en sektin milduð Rannsókn banaslyss í Brúará miði vel Guðrún spyr um há laun æðstu ráðamanna Fullyrðing um slaufun verknámsskóla „kolröng“ Rafmagn komið á aftur VG skoðar samstarf við aðra flokka fyrir kosningar næsta vor Grunur um íkveikju á Hjarðarhaga Mættu heim til lögreglumanns og ógnuðu honum með hníf Orri Harðarson er allur Látinn eftir líkamsárás en árásarmaðurinn gengur laus „Þetta er glórulaust rugl í ráðherra“ Tilkynningum um nauðganir fjölgaði milli ára „Ég trúi ekki öðru en að þetta fari í gegn“ „Þetta er afturför í þjónustu við konur með endómetríósu“ Leit að göngumanni og ein harðasta árásin á Úkraínu Rafmagnslaust víða á Suðurlandi Leitin ekki enn borið árangur Reyndi að stinga lögreglu af á stolnum bíl Hljóðfæraleikarar að óbreyttu á leið í verkfall Leita týnds göngumanns Leita leiða til að auðvelda framsal fanga til heimalands síns Taka húfurnar úr sölu: Harma að „misheppnað grín“ hafi komið illa við fólk Nemar á Landspítalanum klæddust „Öldrunarbúningi“ Ökumenn mótorhjóla greiða meira en landsbyggðin minna Ástand í Kaliforníu og breytt frumvarp um kílómetragjald Tveir sjúkrabílar kallaðir út vegna bílslyss við Mjódd Sóttu veikan sjómann Konan er fundin Slökktu eld á svölum á fjórðu hæð í Engihjalla Ekki hægt að nota rafræn skilríki Sjá meira