Áhrif gengisdómsins ekki jafn mikil og talið var 16. febrúar 2012 18:30 Már Guðmundsson, seðlabankastjóri.
Seðlabankastjóri segir áhrif gengisdómsins ekki verða jafn mikil og áður var talað um. Bankarnir vita hins vegar ekki enn hvaða samningar falla undir dóm Hæstaréttar eða hvernig eigi að haga endurútreikningi á þeim, mörg vafaatriði þurfi að leysa. „Mörgum spurningum er enn ósvarað þegar kemur að því hvaða lán falla undir dóm Hæstaréttar í gær. Sérfræðingar bankanna hafa í dag setið sveittir yfir dómnum og segja talsmenn þeirra að það geti tekið nokkra daga að finna út hvaða lán eigi að endurreikna og þá hvernig," sagði Steingrímur J. Sigfússon. „Dómurinn byggir á undantekningu frá meginreglu, hann er mjög einstaklingsbundinn og byggir á fyrri dómum um lögskipti aðila, af því leiðir að það er erfitt að meta hversu víðtækt fordæmisgildi dómsins er." Stærsta atriðið er einmitt hvert fordæmisgildi dómsins er og svo virðist sem enginn viti hvernig eigi að túlka það, það er hvort dómurinn eigi einungis að gilda um fólk sem hefur greitt af lánum sínum eins og hjónin í dómnum eða gildir hann líka til dæmis um fólk sem hefur fengið greiðslufresti, fryst lán eða verið í vanskilum á einhverjum tímapunkti. Þá kemur til álita frá hvaða tíma vaxtabreytingar eiga að gilda, það er hvort það sé frá dómi hæstaréttar um ólögmæti gengistryggðra lána haustið 2010, frá lagasetningu alþingis í desember 2010 eða frá því að einstaka lánasamningur er dæmdur ólögmætur. Það getur því margt haft áhrif á það hvort að einstaklingar með ólögmæt gengistryggð lán muni fá endurútreikning eftir þennan nýjasta dóm Hæstaréttar eða hvort fleiri dóma þurfi til skera úr um önnur lánaform. Már Guðmundsson seðlabankastjóri segir óvissuna nú miklu minni en sumarið 2010 þegar lánin voru fyrst dæmd ólögleg, hann segir fordæmisgildi dómsins ná til fyrri gjalddaga gengistryggðra lána sem eru lík þessu láni. „Sumir tala um einhverja tugi milljarða en það er ýmislegt að koma í ljós að þetta sé minna en það og við skulum bara sjá hvað kemur út úr þessum útreikningum, ég held það sé ekki ástæða til að hafa alltof miklar áhyggjur af þessu á þessu stigi málsins," sagði Már Guðmundsson, seðlabankastjóri.
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að keyra bókun 35 í gang Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Sjá meira