Jóhanna tók á móti japanskri sendinefnd 17. febrúar 2012 11:39 Jóhanna og japanska sendinefndin.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra tók í morgun á móti sendinefnd frá Japan, sem leidd er af hópi japanskra þingmanna, með þátttöku fulltrúa japanskra fyrirtækja og stofnana. Þetta kemur fram á vef forsætisráðuneytisins. Sendinefndin færði forsætisráðherra bréf forsætisráðherra Japans, Yoshihiko Noda. Í bréfinu þakkar hann sérstaklega fyrir samúð og stuðning íslenskra stjórnvalda og þjóðarinnar eftir jarðskjálftana og hamfarirnar sem urðu í Japan í mars 2011. Uppbyggingarstarfið hefur verið mikið en gengið vel. Hluti uppbyggingarstarfsins er endurskoðun orkustefnu Japana, þannig að kjarnorkuverum er lokað, en horft til nýrra orkugjafa. Japan er ríkt af jarðhita og eru miklar vonir bundnar við nýtingu hans í Japan. Því er leitað til Íslands og íslenskra stjórnvalda og fyrirtækja um samstarf, reynslu og tækniþekkingu. Ennfremur hvetur japanski forsætisráðherrann til frekara tvíhliða samstarfs, svo og samstarfs á alþjóðavettvangi í málum þar sem Ísland og Japan eiga sameiginlega hagsmuni. Formaður sendinefndarinnar, Teruhiko Mashiko, leiðir sérstaka nefnd í Japan um uppbyggingu eftir jarðskjálftana og hamfarirnar sem urðu í mars 2011, en hann er einnig þingmaður fyrir Fukushima, svæðið sem varð harðast úti. Forsætisráðherra bað fyrir hlýjar kveðjur til Japan, bæði forsætisráðherra, þings og þjóðarinnar. Hún þakkaði einnig japönskum stjórnvöldum fyrir virkan stuðning og vinarhug með sérstöku framlagi þeirra til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins haustið 2008, sem sérstaklega var ætlað til stuðnings Íslandi og slíkum þróuðum hagkerfum sem kreppan hefði alvarleg áhrif á. Mikil tækifæri eru til frekara og nánara samstarfs Japans og Íslands og er ljóst að nýting jarðhita í Japan getur skapað þar mikil tækifæri og stutt við nýja stefnu þarlendra stjórnvalda, auk þess að samræmast vel stefnumörkun á alþjóðavettvangi.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Sjá meira